Hlutverk guðfeðgina nú er fyrst og fremst að fylgjast með barninu og trúarvexti þess, og vera dugleg að biðja fyrir barninu. Góð er sú venja að guðfeðgin haldi sérstaklega upp á skírnarafmæli barnsins.
Guðfeðgin skulu vera tvö hið minnsta en mest fimm. Eðlilegt er að hvetja til þess að eitt þeirra hið minnsta, sé á líkum aldri og foreldrarnir og geti þessvegna fylgt barninu eftir til fullorðinsára. Sérstaklega er þetta nauðsynlegt í þeim fjölskyldum þar sem venja er að amma og afi séu guðfeðgin, eða skírnarvottar.
Kristján Valur Ingólfsson. Úr svari við fyrirspurn á trú.is/svor.Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem heyrir orð mitt og trúir þeim sem sendi mig hefur eilíft líf og kemur ekki til dóms heldur er hann stiginn yfir frá dauðanum til lífsins.
Á sömu stundu fylltist Jesús af fagnandi gleði heilags anda og sagði: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.
Guð minn, kom til mín í myrkrinu og umlyk mig náð. Þú ert mitt skjól, óbifanlegt athvarf í heiminum. Hjá þér er ég aftur barn, sem borið er hverja stund. Hugsanirnar hljóðna hjá þér og hjartað finnur hvíld. (M.Melin)
Guð faðir sé vörður og verndari þinn,
svo veröld ei megi þér granda,
hvert fet þig hann leiði við föðurarm sinn
og feli þig sér milli handa.
(Valdimar Briem)
„Því að allir þeir sem leiðast af anda Guðs, þeir eru Guðs börn.“ (Róm 8.14)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.