Sjaldan vinna manneskjur stórvirki á einum degi enda ekki heldur til þess ætlast. En þær vinna hins vegar að því smáa í lífinu – og til þess er nefnilega ætlast - lífið er samsett úr aragrúa smáatriða sem gefa okkur heillega mynd þegar búið er að raða þeim saman.
Hvert smáatriði er mikilvægt út af fyrir sig – á sama hátt og hver manneskja er mikilvæg út af fyrir sig í spilverki lífsins – án einhvers smáatriðis væri sem eitthvað vantaði í lífið – eins og einn lágvær flaututónn úr einfaldri tréflautu getur gert eitt tónverk að ódauðlegu meistarastykki þá gildir hið sama um smáatriði lífsins.
Einn og stakur tónn flautunnar er veikur en í samfélagi tónanna hljómar styrkur hans og tilgangur. Oft viljum við horfa fram hjá þessum smáatriðum og virðum þau ekki mikils – saman komin í eina heild upplýkst tilgangur þeirra. Við sjáum þá mynd af sjálfum okkur.
Hreinn Hákonarson. Úr pistlinum Öll þessi smáatriði lífsins.En hann sagði þessa dæmisögu: Maður nokkur átti fíkjutré gróðursett í víngarði sínum. Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki.Hann sagði þá við víngarðsmanninn: Í þrjú ár hef ég nú komið og leitað ávaxtar á fíkjutré þessu og ekki fundið. Högg það upp. Hví á það að spilla jörðinni?En hann svaraði honum: Herra, lát það standa enn þetta ár, þar til ég hef grafið um það og borið að áburð.Má vera að það beri ávöxt síðan. Annars skaltu höggva það upp.
Þetta vil ég hugfesta, þess vegna vil ég vona: Náð Drottins er ekki þrotin, miskunn hans ekki á enda, hún er ný á hverjum morgni, mikil er trúfesti þín! Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín, þess vegna vil ég vona á hann. Góður er Drottinn þeim er á hann vona, og þeirri sál er til hans leitar. Gott er að bíða hljóður eftir hjálp Drottins. Rannsökum breytni vora og prófum og snúum oss til Drottins. Fórnum hjarta voru og höndum til Guðs í himninum.
Enn líður ár, hjálpa okkur að horfa ekki um öxl í söknuði og reiði, og fram á við í kvíða og áhyggjum, heldur horfa jafnan til beggja hliða í kærleika, eilífi Guð og faðir. Amen.
Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.
(Valdimar Briem)
„Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, eins og þú hefur heitið mér, því að augu mín hafa séð hjálpræði þitt.“ (Lúk 2.29-30)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.