Þá komu lærisveinarnir til hans og spurðu: „Hvers vegna talar þú til fólksins í dæmisögum?“
Hann svaraði: „Ykkur er gefið að þekkja leynda dóma himnaríkis, öðrum er það ekki gefið. Því að þeim sem hefur mun gefið verða og hann mun hafa gnægð en frá þeim sem eigi hefur mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur. Þess vegna tala ég til þeirra í dæmisögum að sjáandi sjá þau ekki og heyrandi heyra þau ekki né skilja.
Þegar Móse hafði lokið við að flytja öll þessi ákvæði fyrir öllum Ísrael sagði hann: „Leggið ykkur á hjarta öll þau orð sem ég hef flutt ykkur í dag. Brýnið fyrir börnum ykkar að halda öll ákvæði þessara laga og framfylgja þeim. Þau eru ekki innantóm orð sem engu skipta, þau eru sjálft líf ykkar því að sakir þessara orða verðið þið langlíf í landinu sem þið haldið nú inn í yfir Jórdan til að taka það til eignar.“
Drottinn, hjálpa mér að efast ekki um að þú ert Guð - að Jesús er frelsari minn - að þú ert hjá mér með heilögum anda þínum. Amen.
Lífdögg hann oss sendi sína:
sinnar skírnar vatnið tært.
Ljósið sitt hann lét oss skína:
lífsins orða blysið skært.
Náðargeisla himins hlýja
hann oss jafnan sendi nýja.
(Valdimar Briem)
„Svo segir: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar eins og í uppreisninni.““ (Heb 3.15)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.