Trúin og lífið
Almanak – 11. febrúar 2010

Morgunlestur: Mrk 4.26-29

Þá sagði Jesús: „Svo er Guðs ríki sem maður sái sæði í jörð. Hann sefur síðan og vakir, nætur og daga, en sæðið grær og vex, hann veit ekki með hverjum hætti. Sjálfkrafa ber jörðin ávöxt, fyrst stráið, þá axið og síðan fullvaxið hveiti í axinu. En þá er ávöxturinn er fullþroska lætur hann þegar bera út sigðina því að uppskeran er komin.“

Kvöldlestur: Post 16.8-15

Hvíldardaginn gengum við út fyrir hliðið að á einni en þar hugðum við vera bænastað. Settumst við niður og töluðum við konurnar sem voru þar saman komnar. Kona nokkur úr Þýatíruborg, sem sótti samkundu Gyðinga, Lýdía að nafni, er verslaði með purpura, hlýddi á. Opnaði Drottinn hjarta hennar og hún tók við því sem Páll sagði. Hún var skírð og heimili hennar og hún bað okkur: „Gangið inn í hús mitt og dveljist þar fyrst þið teljið mig trúa á Drottin.“ Þessu fylgdi hún fast fram.

Bæn

Drottinn, hjálpa mér að muna að ekkert það mun henda í dag sem þú og ég getum ekki ráðið við í félagi.

Sálmur (sb. 118)

Lát hann ei geta hindrað mig,
ó, herra, frá að lofa þig,
lát aldrei því fá hamlað hann,
að heyrt ég geti sannleikann,
lát hann ei blekkja sálarsjón
og svik hans önd ei búa tjón.
(Helgi Hálfdánarson)

Minnisvers vikunnar

„Svo segir: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar eins og í uppreisninni.““ (Heb 3.15)

Yfirlit

Um almanakið

Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.


Nafn:
Netfang:

Almanak
Sálmabók
Bænir