Fyrir mig, Jesú, þoldir þú
þjáning og beiska pínu.
Hjartað gleðst, því ég heyri nú
hrósað sakleysi þínu.
Syndin lá sárt á mér;
sök fannst engin hjá þér.
Svo er sakleysið þitt
sannlega orðið mitt;
við málefni tókstu mínu.
Gerið því hugi ykkar viðbúna og verið vakandi. Bindið alla von ykkar við þá náð sem ykkur mun veitast við opinberun Jesú Krists. Verið eins og hlýðin börn og látið líferni ykkar ekki framar mótast af þeim girndum er þið áður létuð stjórnast af í vanvisku ykkar. Verðið heldur sjálf heilög í öllu dagfari ykkar eins og sá er heilagur sem ykkur hefur kallað. Ritað er: „Verið heilög því ég er heilagur.“
Og Jóhannes vitnaði: „Ég sá andann koma af himni ofan eins og dúfu og hann nam staðar yfir honum. Sjálfur þekkti ég hann ekki en sá er sendi mig að skíra með vatni sagði mér: Sá sem þú sérð andann koma yfir og nema staðar á, hann er sá sem skírir með heilögum anda. Þetta sá ég og ég vitna að hann er sonur Guðs.“
Guð faðir á himnum. Í dag bið ég fyrir hinum ungu í blóma lífs síns og fyrir hinum öldnu sem þroskast til uppskerutímans. Ég bið fyrir öllum dögum og stundum sem Drottinn gefur mér að lifa og að ég læri að helga honum tíma minn. Drottinn, miskunna þú oss. Amen.
Lát hann ei geta hindrað mig,
ó, herra, frá að lofa þig,
lát aldrei því fá hamlað hann,
að heyrt ég geti sannleikann,
lát hann ei blekkja sálarsjón
og svik hans önd ei búa tjón.
(Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson)
„En Jesús sagði við hann: „Enginn sem leggur hönd á plóginn og horfir aftur er hæfur í Guðs ríki.““ (Lúk 9.62)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.