Sjúkdóm minn sjálfur barstu,
svo varð ég heill. Með því
hörmungum hlaðinn varstu,
frá hryggðum er ég nú frí.
Hegning þú leiðst svo hefði eg frið.
Benjar þínar mér bættu,
bót sú þar átti við.
Úr samkundunni fór Jesús í hús Símonar. En tengdamóðir Símonar var altekin sótthita og báðu þeir hann að hjálpa henni. Jesús gekk að, laut yfir hana og hastaði á sótthitann og fór hann úr henni. En hún reis jafnskjótt á fætur og gekk þeim fyrir beina.
En Drottinn sagði við Pál um nótt í sýn: „Óttast þú eigi, haltu ótrauður áfram að tala, þagna ekki. Ég er með þér. Enginn skal ráðast að þér og vinna þér mein því að ég á margt fólk í þessari borg.“ Hann var þar um kyrrt þrjú misseri og kenndi þeim orð Guðs.
Almáttugi Guð. Við biðjum fyrir hinum sterku sem hafa stjórn á lífi sínu og virðast ráða örlögum sínum, fyrir þeim sem eru heppin og ná árangri og fyrir þeim sem eru eitthvað sérstakt sjálfum sér og öðrum , og fyrir sálu þeirra að hún spillist ekki. Drottinn, miskunna þú oss. Amen.
Frá þér er, faðir, þrek og vit,
öll þekking, ást og trú.
Kenn oss að þakka einum þér
það allt, sem gefur þú.
(Sigurbjörn Einarsson)
„En Jesús sagði við hann: „Enginn sem leggur hönd á plóginn og horfir aftur er hæfur í Guðs ríki.““ (Lúk 9.62)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.