Son guðs ertu með sanni,
sonur guðs, Jesú minn.
Son guðs syndugum manni
sonararf skenktir þinn,
son guðs einn eingetinn.
Syni guðs syngi glaður
sérhver lifandi maður
heiður í hvert eitt sinn.
En nú segir Drottinn,
hann sem myndaði mig í móðurlífi
til að vera þjónn sinn,
til að ég sneri Jakobi aftur til sín
og til að Ísrael yrði safnað saman hjá honum.
Ég er dýrmætur í augum Drottins
og Guð minn varð minn styrkur.
Hann segir: Það er of lítið að þú sért þjónn minn
til að endurreisa ættbálka Jakobs
og leiða þá aftur heim
sem varðveist hafa af Ísrael.
Ég geri þig að ljósi fyrir þjóðirnar
svo að hjálpræði mitt nái allt til endimarka jarðar.
Þá heyrði ég að allt sem skapað er á himni og jörðu, undir jörðunni og á hafinu, og allt sem í þeim er, tók undir og sagði:
Honum, sem í hásætinu situr, og lambinu,
sé lof og heiður, dýrð og kraftur um aldir alda.
Heilagi Guð. Við biðjum fyrir samstarfsfólki og vinnufélögum og fyrir öllum þeim sem vinna að sömu málum og við. Sérstaklega biðjum við fyrir öllum þeim sem eru á leið til gleðistunda eða sorgarstunda og eru þó alein því að enginn hirðir um annan í sjálfselsku sinni. Drottinn, miskunna þú oss. Amen.
En lát þann dag oss ljóma brátt,
er losna böndin hörð,
og réttur þinn og ríki fær
öll ráð á vorri jörð.
(Sigurbjörn Einarsson)
„En Jesús sagði við hann: „Enginn sem leggur hönd á plóginn og horfir aftur er hæfur í Guðs ríki.““ (Lúk 9.62)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.