Trúin og lífið
Almanak – 16. mars 2010

Um Pílatí rangan dóm

Drottinn Jesú, sem dæmdur vart,
dómari kemur þú aftur snart.
Dómsmenn láttu til dýrðar þér
dómana vanda rétt sem ber.
Þvo þú vor hjörtu og hendur með.
Hrein trú varðveiti rósamt geð.
Þitt blóð flekklaust sem flóði á kross,
frelsi það börnin vor og oss.

Úr 28. Passíusálmi

Morgunlestur: Job 9.14-23,32-35

Guð er ekki maður eins og ég, að ég geti svarað honum
og við mæst fyrir rétti.
Enginn er til sem getur skorið úr málum vorum
og lagt hönd sína yfir oss báða.

Kvöldlestur: Mrk 14.53-65

Þá stóð æðsti presturinn upp og spurði Jesú: „Svarar þú því engu sem þessir vitna gegn þér?“
En hann þagði og svaraði engu. Enn spurði æðsti presturinn hann: „Ertu Kristur, sonur hins blessaða?“
Jesús sagði: „Ég er sá og þið munuð sjá Mannssoninn sitja til hægri handar Hins almáttuga og koma í skýjum himins.“

Bæn

Drottinn, ég þakka þér, sem veittir mér vernd og hvíld í nótt og vekur mig til nýs dags. Vek þú hug minn og hjarta til trúar, vonar og kærleika, svo að ég verði barn þess morguns, sem lýsir af Jesú Kristi, frelsara mínum, og fái liðinn að fagna ljósi þíns eilífa dags. Amen.

Sálmur (sb. 340)

Mitt af syndum særða hjarta
sundurkramið meðtak þú,
lát þinn ástarljómann bjarta
lífga það og styrkja nú.
Lækna sárin, lát mín tárin
ljóma' af elsku' og sannri trú.
(Sb. 1871 - Páll Jónsson)

Minnisvers vikunnar

„Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr verður það áfram eitt. En ef það deyr ber það mikinn ávöxt.“ (Jóh 12.24)

Yfirlit

Um almanakið

Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.


Nafn:
Netfang:

Almanak
Sálmabók
Bænir