Sú heilaga aflausn hryggð og sút
af hjarta mínu greiðir,
syndanna leysir hlekkja hnút
og hér með út
úr hörðu fangelsi leiðir.
Þá kom engill Drottins öðru sinni, snerti hann og sagði: „Rís upp og matast. Annars reynist þér leiðin of löng.“ Hann reis upp, át og drakk. Endurnærður af máltíðinni gekk hann í fjörutíu daga og fjörutíu nætur þar til hann kom að Hóreb, fjalli Guðs
Þá sögðu þeir við hann: „Drottinn, gef okkur ætíð þetta brauð.“ Jesús sagði þeim: „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra sem til mín kemur og þann aldrei þyrsta sem á mig trúir.
Drottinn, vér biðjum þig fyrir öllum sem standa í stríði við freistingar og hugleysi, fyrir öllum sem syrgja og þjást, fyrir öllum sem eiga í baráttu við efasemdir, fyrir öllum sem vér höfum brotið gegn, fyrir öllum sem gjört hafa á hluta vorn, fyrir öllum sem líða vegna ranglætis. Miskunna þú oss öllum, Drottinn, sakir eilífrar náðar þinnar í Jesú Kristi. Amen.
Allar nægtir æðstu gæða
eg, minn Jesús, fæ hjá þér,
himnesk orð þín hugga' og fræða,
himnesk náð þín líknar mér.
Hold og blóð þitt, hold og blóð þitt
himnesk lífsins fæða er.
(Sb. 1871 - Páll Jónsson)
„Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr verður það áfram eitt. En ef það deyr ber það mikinn ávöxt.“ (Jóh 12.24)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.