Því að samverkamenn Guðs erum við, Guðs akurlendi, Guðs hús eruð þið.
Sem vitur byggingameistari hef ég lagt grundvöll eftir þeirri náð sem Guð hefur veitt mér en annar hefur byggt ofan á. En sérhver athugi hvernig hann byggir. Annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem lagður er, sem er Jesús Kristur.
Úr samkundunni fór Jesús í hús Símonar. En tengdamóðir Símonar var altekin sótthita og báðu þeir hann að hjálpa henni. Jesús gekk að, laut yfir hana og hastaði á sótthitann og fór hann úr henni. En hún reis jafnskjótt á fætur og gekk þeim fyrir beina.
Á sama hátt og Jesús tók að sér hina fátæku, útskúfuðu og fyrirlitnu, þannig ætti líf vort að gera kærleika þinn sýnilegan heiminum. Hjálpa oss til þess í Jesú nafni. Amen.
Ég gleðst af því ég Guðs son á.
Hvað gjört fær mér nú heimurinn?
Minn ástvin Jesús er mér hjá
með allan mátt og kærleik sinn.
(Helgi Hálfdánarson)
„Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sundur
og dapran hörkveik slekkur hann ekki.
Í trúfesti kemur hann rétti á. “ (Jes 42.3)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.