Trúin og lífið
Almanak – 30. ágúst 2010

Morgunlestur: 2Sam 9.1-11

Meðal þeirra, sem þjónuðu fjölskyldu Sáls, var maður að nafni Síba. Hann var nú kallaður fyrir Davíð og konungur spurði hann: „Ert þú Síba?“ Hann svaraði: „Já, herra.“ Því næst spurði konungur: „Er nokkur eftir af ætt Sáls sem ég get sýnt gæsku Guðs?“ Síba svaraði konungi: „Einn sona Jónatans er á lífi, lamaður á báðum fótum.“

Kvöldlestur: Post 4.32-35

En í þeim fjölda, sem trú hafði tekið, var eitt hjarta og ein sál og enginn þeirra taldi neitt vera sitt er hann átti heldur höfðu menn allt sameiginlegt. Postularnir báru vitni um upprisu Drottins Jesú með miklum krafti og mikil náð var yfir þeim öllum.

Bæn

Drottinn Guð, konungur lífsins, nú þegar ný vinnuvika hefst með amstri sínu og áhyggjum, biðjum vér þess að mega þjóna þér í öllu því sem vér gjörum og uppbyrjum. Leið oss rétta vegu og kenn oss að gjöra það sem er oss hjálpsamlegt. Hjálpa oss að láta það vera sem þér mislíkar. Blessa störf vor. Send oss til starfa í heiminum upplýst af sannleika þínum, borin uppi af miskunn þinni, bundin af vilja þínum og blessuð af fyrirheiti þínu. Gef oss árangur og ávöxt sem varir.

Sálmur (sb. 191)

Hvar sem þú einhvern auman sér,
hann aðstoð máttu' ei svipta.
Hvort sem hann vin eða' óvin er,
það engu lát þig skipta.
Þið eruð báðir börnin hans,
er báða skapað hefur
vernd og vefur,
og limir lausnarans,
er líf hann báðum gefur.
(Valdimar Briem)

Minnisvers vikunnar

Kristur segir: „Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“ (Matt 25.40b)

Yfirlit

Um almanakið

Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.


Nafn:
Netfang:

Almanak
Sálmabók
Bænir