Jesús svarar þeim: „Hver er móðir mín og bræður?“ Og hann leit á þau er kringum hann sátu og segir: „Hér er móðir mín og bræður mínir! Hver sem gerir vilja Guðs, sá er bróðir minn, systir og móðir.“
Takir þú yfirhöfn náunga þíns að veði skaltu skila henni aftur fyrir sólarlag því að hún er eina skjól hans, kápan sem hann skýlir líkama sínum með. Í hverju á hann annars að sofa? Þegar hann hrópar til mín hlusta ég því að ég er miskunnsamur.
Almáttugi faðir, kom í dag inn til okkar og fyll okkur sjálfum þér. Seg við hvern og einn af okkur: Ég er frelsari þinn. Tala svo við heyrum það, og gjör okkur það ljóst, Drottinn Guð. Hjálpa þjónum þínum sem í dag boða orð þitt og tilbiðja þig ásamt með söfnuði þínum í helgidóminum. Opna hjörtu allra sem á þá hlýða, svo þeir taki við þér og þjóni þér með gleði. Heyr þá bæn, himneski faðir fyrir sakir sonar þíns. Amen.
Sá eini', er hvergi fram hjá fer, er frelsarinn vor blíði. Hvert mein hann veit, hvert sár hann sér, er svellur lífs í stríði. Hann sjálfur bindur sárin öll og særðum heimför greiðir, eymdum eyðir, og loks í himnahöll til herbergis oss leiðir. (Valdimar Briem)
Kristur segir: „Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“ (Matt 25.40b)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.