Trúin og lífið
Almanak – 2. september 2010

Morgunlestur: Post 6.1-7

Á þessum dögum, er lærisveinum fjölgaði, fóru grískumælandi menn að kvarta yfir því að hebreskir settu ekkjur þeirra hjá við daglega úthlutun. Hinir tólf kölluðu þá lærisveinahópinn saman og sögðu: „Ekki hæfir að við hverfum frá boðun Guðs orðs til að þjóna fyrir borðum. Finnið því, systkin, sjö vel kynnta menn úr ykkar hópi sem fullir eru anda og visku. Munum við setja þá yfir þetta starf. En við munum helga okkur bæninni og þjónustu orðsins.“

Kvöldlestur: Lúk 14.12-15

Þá sagði Jesús við gestgjafa sinn: „Þegar þú heldur miðdegisverð eða kvöldverð bjóð þá hvorki vinum þínum né bræðrum, ættingjum né ríkum nágrönnum því að þeir bjóða þér aftur og þú færð það endurgoldið. Þegar þú gerir veislu þá bjóð þú fátækum og örkumla, höltum og blindum og munt þú sæll verða því að þeir geta ekki endurgoldið þér en þú færð það endurgoldið í upprisu réttlátra.“

Bæn

Drottinn, við þökkum þér fyrir orð eilífs lífs. Mörgu af því sem þú hefur sagt höfum við gleymt og látið framhjá fara, en taktu þó ekki orð þitt frá okkur. Gef okkur anda þinn, sem áminnir okkur um allt sem þú hefur sagt og leiðir okkur í allan sannleika. Vek hjá okkur þorsta eftir orði þínu og hjálpa söfnuði þínum að halda sig við þig í náðarmeðulum þínum. Gef okkur og öllum sem tilbiðja þig eindrægni og samhug og ver með okkur alla daga allt til enda veraldar. Amen.

Sálmur (sb. 22)

Þú, mikli Guð, ert með oss á jörðu,
miskunn þín nær en geisli á kinn.
Eins og vér finnum andvara morguns,
eins skynjar hjartað kærleik þinn.
(Sigurbjörn Einarsson)

Minnisvers vikunnar

Kristur segir: „Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“ (Matt 25.40b)

Yfirlit

Um almanakið

Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.


Nafn:
Netfang:

Almanak
Sálmabók
Bænir