Trúin og lífið
Almanak – 5. september 2010

Fjórtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð - Þakkláti Samverjinn

Morgunlestur: Lúk 17.11-19

Jesús sá þá og sagði við þá: „Farið og sýnið yður prestunum.“ Þeir héldu af stað og nú brá svo við að þeir urðu hreinir. En einn þeirra sneri aftur er hann sá að hann var heill orðinn og lofaði Guð hárri raustu. Hann féll fram að fótum Jesú og þakkaði honum.

Kvöldlestur: 1Mós 28.10–19a

Og sjá, ég er með þér og gæti þín hvar sem þú ferð og mun leiða þig aftur til þessa lands því að ég yfirgef þig ekki fyrr en ég hef komið því til leiðar sem ég hef heitið þér.“

Bæn

Guð, þú sem ert brunnur og lind náðarinnar. Allt hið góða kemur frá þér, og af því gefur þú okkur ríkulega. Opna þú hjörtu okkar svo að við sjáum og skiljum það, og lærum að þakka þér fyrir gæsku þína og miskunnsemi svo lengi sem við lifum. Fyrir Drottin Jesú Krist, son þinn, og bróður okkar, sem með þér og heilögum anda lifir og gefur líf að eilífu.

Sálmur (sb. 192)

Á meðan engin mætir neyð,
á meðan slétt er ævileið,
vér göngum þrátt með létta lund
og leitum ei á Jesú fund.
(Valdimar Briem)

Minnisvers vikunnar

„Lofa þú Drottin, sála mín,
og allt sem í mér er, hans heilaga nafn;
lofa þú Drottin, sála mín,
og gleym eigi neinum velgjörðum hans.“
(Slm 103.2)

Yfirlit

Um almanakið

Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.


Nafn:
Netfang:

Almanak
Sálmabók
Bænir