Drottinn Guð, vilji þinn og vegur þinn er okkur einatt ókunnugur. Því að þú ert órannsakanlegur.
Þú gerir okkur oft erfitt fyrir þegar við leitum sannleikans. Gefðu okkur skíra sjón og skarpan skilning til þekkja það sem er rétt og kjark til að hafna því sem er rangt og falskt.
Þú sendir son þinn í heiminn til að sigra vald hins illa.
Láttu ekki viðgangast að við forðumst að taka ákvarðanir og afstöðu. Leiðbeindu okkur á þinum vegi að takmarkinu sem þú setur.
Lofaður sért þú að eilífu.
Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus