Eilífi Guð og faðir. Þú hefur skapað mig og annast mig frá móðurlífi, við hvert fótmál og andartak, í vöku og svefni, er hönd þín yfir mér, skapandi, hjálpsöm og góð. Lát líf mitt lofa þig. Fyrirgef allt sem ég brýt gegn þér. Ég fel mig miskunn þinni og bið mig að lýsa mér, þegar ég vaki og varðveita mig er ég sef, svo að ég sé þinn á nóttu sem degi, í lífi og dauða. Fyrir Jesú Krist, Drottin minn og frelsara. Amen.
Sigurbjörn Einarsson
Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus