Guð, við biðjum um kraftaverk
endurnýjunnarinnar á þessum
myrkasta tíma ársins. Við biðjum
um von og traust á sigur ljóssins
þegar skammdegið virðiist ríkja.
Við biðjum um hugrekki til að leita
leiða friðar og sátta. Við biðjum
um hjálp til að trúa á sigur hins
varnarlausa kærleika, þegar friður og
réttlæti ráða. Við biðjum um opna
hugi frammi fyrir undri jólanna
-að þú kemur í nýfæddu barni
sem í varnarleysi sínu er frelsari og
friðarhöfðingi, vonartáknið þeim
heimi sem þú elskar, Guð. Ger okkur
að fulltrúum ríkis jólanna, í trú,
von og kærleika. Amen.
K. G. Hammar
Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus