Kristur sé með mér,
Kristur fari fyrir mér,
Kristur að baki mér,
Kristur í mér,
Kristur undir mér,
Kristur yfir mér.
Kristur til beggja handa,
Kristur þar sem ég ligg,
Kristur þar sem ég sit,
Kristur er ég rís á fætur.
Kristur í hjarta sérhvers
sem hugsar til mín.
Kristur á tungu sérhvers
manns sem talar um mig.
Kristur fyrir sjónum
sérhvers manns sem sér mig.
Hjálpræðið er Drottins,
hjálpræðið er Drottins,
hjálpræðið er Drottins.
Hjálpræði þitt, Drottinn, sé ætíð
með oss.
brjóstskjöldur heilags Patreks, Bænabókin, Leðsögn á vegi trúarinnar eftir Karl Sigurbjörnsson
Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus