Trúin og lífið
Bænir

Guð, þú sem gefur veikum styrk og ljós þeim sem í myrkri eru.

Guð, þú sem gefur veikum styrk og
ljós þeim sem í myrkri eru. Hjálpa
oss að þekkja son þinn, Jesú Krist,
svo að vér lærum að þekkja þig í
honum. Hjálpa oss að hneykslast
ekki á krossi hans og pínu, heldur
sjá þar dýrð sonar þíns, sem er
fullur náðar og sannleika. Gef að
vér í veikleika vorum íklæðumst
krafti hans og ljós hans rými burt
myrkri voru. Hjálpa oss að rísa
ekki gegn vilja þínum. Fyrir Jesú
Krist, Drottin vorn. Amen.


Bænabókin. Leiðsögn á vegi trúarinnar eftir Karl Sigurbjörnsson

Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus

Í dagsins önn

Trúarlífið og bænin

Almanak
Sálmabók
Bænir