Trúin og lífið
Bænir

Djúp viskunnar Leit ekki lengra til að skilja Guð,

Djúp viskunnar
Leit ekki lengra til að skilja Guð,
því að þeir sem vilja þekkja
hin dýpstu djúp
verða fyrst að skilja eðli náttúrunnar.
Að skilja heilaga þrenningu
sögðu hinir vitru forðum
er sem að gaumgæfa dýpi hafsins.
Og hver getur gaumgæft
þau regindjúp?
Ef maður vill kanna djúp viskunnar,
verður hann fyrst að þekkja
hinn sýnilega sæ.
Því minna sem hann skilur
þá sköpun sem dylst undir
yfirborði hans,
þeim mun meir verður honum ljóst
hve lítið hann getur vitað
um djúp skaparans
sjálfs.

Heilagur Kólumba
Bænabókin. Leiðsögn á vegi trúarinnar eftir Karl Sigurbjörnsson

Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus

Í dagsins önn

Trúarlífið og bænin

Almanak
Sálmabók
Bænir