Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.
18. ágúst 2004
Þjónusta djákna er tiltölulega nýtilkomin á Íslandi , en hún fyrirfinnst bæði á stofnunum og í söfnuðum.
Kærleiksþjónusta er þessi starfsemi oft nefnd en hún greinist í líknar og kærleiksþjónustu. Djáknar eru sérstaklega kallaðir til þessarar þjónustu. Þeir skulu vera þjónar í heiminum og leitast við að miðla kærleika Guðs til annarra manna. Þjónustan felst m.a. í að styðja þá sem minna mega sína og tala máli þeirra. Einnig í fyrirbæn og bænaþjónustu, leiðsögn og fræðslu um kristna trú til ungra og aldinna. Benda öðrum á lífsins veg og horfa ætíð til frelsarans Jesú Krists sem fyrirmyndar og fylgja leiðsögn hans.
Á hjúkrunarheimilunum Eir og Skjóli, sem eru systraheimili, hafa djáknar starfað um nokkurra ára skeið. Þessi tvö heimili eru hvert um sig sjálfstæðar stofnanir, en hafa sameiginlegan forstjóra og ýmsir rekstrarþættir eru sameiginlegir, svo sem eldhús, bókhald, tannlæknaþjónusta, bakvaktir lækna og fleira.
Guðrún K. Þórsdóttir djákni starfar í Skjóli, en undirrituð Brynhildur Ósk Sigurðardóttir í Eir. Bæði störfin eru hlutastörf, 40% og 60%. Störf djákna á þessum heimilum felast í sálgæslu og andlegum stuðningi við heimilisfólk og aðstandendur þess, svo og starfsfólk ef þess er óskað. Sjá um kveðjustundir við dánarbeð og minningarstundir eftir lát heimilismanna, þegar óskað er eftir því. Þá sjá þeir um fyrirbænastundir með heimilisfólki, aðstandendum og starfsfólki. Þeir annast einnig heimsóknir til heimilisfólks, en tilgangur þeirra er að rjúfa einangrun, veita félagsskap, skapa öryggi og traust og veita andlegan stuðning. Þeir annast samverustundir með heimilisfólki þar sem sitthvað skemmtilegt og uppbyggilegt er á dagskrá. Þá eru samverustundir með minnissjúkum þar sem reynt er með samræðum að örva minnið með skírskotun til fortíðar, en einnig til líðandi stundar.
Eins og sjá má af þessari upptalningu er starfið fjölbreytt og krefst frumkvæðis og árvekni.
Á báðum heimilunum, Eir og Skjóli, annast viðkomandi sóknarprestar þjónustu. Þeir koma að jafnaði vikulega á heimilin og eru með stuttar helgistundir á hjúkrunardeildunum og guðsþjónustur einu sinni í mánuði, auk fastra viðtalstíma.
Mikil uppbygging hefur verið í Eir í Grafarvogi á undanförnum árum. Árið 2001 var tekið í notkun hús, sem stendur fyrir ofan Eir og tengist því með undirgangi, þannig að auðvelt er að fara í milli. Þetta hús gengur í daglegu tali undir nafninu Eirarhús. Þar er sambýli fyrir minnissjúka og 37 öryggisíbúðir, þar sem hægt er að kaupa íbúðarrétt. Íbúarnir njóta þjónustu frá Eir í umboði heimahjúkrunar og heimaþjónustu Reykjavíkurborgar. Starfsfólk Eirar annast þessa þjónustu en heimahjúkrun og heimaþjónusta ákveða hvaða þjónustu skuli veitt. Í þessum íbúðum er fullkomið öryggiskerfi og vaktað allan sólarhringinn. Á þennan hátt geta íbúarnir haldið sjálfstæði sínu og heimili, en jafnframt fengið þjónustu og notið öryggis.
Sambýlið í Eirarhúsum er fyrir 10 minnissjúka og er það rekið í tengslum við deild fyrir minnissjúka í Eir.
Í byrjun árs 2004 var tekin í notkun ný álma við Eir, þar sem eru 40 hjúkrunaríbúðir á tveimur hæðum. Íbúðirnar eru 19,1 og 22,5 fermetrar að stærð og eru allar eins manns, en á fjórum stöðum er hægt að tengja saman tvö herbergi sem þá geta þjónað sem hjónaíbúðir. Þar eru líka rúmgóðar borð- og setustofur og góð vinnuaðstaða fyrir starfsfólk.
Á þriðju hæð í þessari nýju álmu er starfrækt dagdeild fyrir minnissjúka. Þar dvelja að jafnaði 20 manns daglega. Sumir í tvo til þrjá daga í viku en aðrir fjóra til fimm daga.
Á báðum heimilunum Eir og Skjóli fer fram fjölbreytt öldrunarþjónusta. Þar eins og alls staðar annars staðar er stöðugt reynt að bæta þjónustuna þrátt fyrir sparnað og aðhald. Virðing fyrir einstaklingum og umhyggja er þar í fyrirrúmi og einmitt í því tilliti nýtast störf djákna vel. Umhyggja fyrir fólki og hjálp í hinum ýmsu kringumstæðum er einmitt eðli djáknaþjónustu.
Brynhildur Ósk Sigurðardóttir er hjúkrunarfræðingur og djákni. Starfaði áður sem hjúkrunarforsjóri á Hrafnistu í Hafnarfirði og síðan djákni í Víðistaðakirkju. Starfar nú sem djákni á Eir, hjúkrunarheimili.
Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 1217.