Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.
28. desember 2004
Netkirkjan i-Church er hugsuð sem kristið eða kristilegt samfélag á netinu. Rík áhersla er á samfélagið og á samskipti. Grunnhugmyndin á bak við i-Church er sú að nota netið til að skapa tengsl á milli fólks sem hefur áhuga á að tengjast kirkjunni og iðka sína trú.
Um tilganginn með i-Church segir á vef þeirra:
Með öðrum orðum: Þetta er hugsað sem vettvangur fyrir þá sem vilja tilheyra kristnum söfnuði en eiga þess ekki kost af einhverjum ástæðum og fyrir þá sem finnst þörfum sínum ekki fullnægt í eigin samhengi.
Meðlimir koma úr ýmsum áttum og úr öllum heimshornum. Um það segir á vefnum:
Unlike visitors to i-church, Community Members make a commitment to support one another in their spiritual pilgrimage. You do not have to be an Anglican (or a Christian) to join the i-church community, but you do have to be serious about exploring the Christian way of life.
Miklar kröfur eru gerðar til meðlima í i-Church. Þeim má skipta í þrennt:
Í þessu sambandi horfðu þau svolítið til Benedikts frá Núrsíu og reglu hans, sagði Richard Thomas, verkefnisstjórai upplýsingamála mér í samtali um i-Church í nóvember.
Viðbrögðin við i-Church hafa verið gríðarlega góð. Morguninni eftir að smáauglýsing birtist í Church Times þar sem auglýst var eftir vefpresti (web pastor) höfðu borist 1000 tölvubréf um kirkjuna og þetta starf. Og vel hefur gengið síðan. Um 800 manns hafa sóst eftir því að verða meðlimir og til viðbótar við það eru 1200 manns á póstlista.
Sumarið 2004 var ráðinn vefprestur til að sinna verkefninu í 50% starfi. Hún hefur unnið gott starf, en það reyndist henni þó ofviða og hún er núna að hætta (gæti verði hætt þegar þessi orð eru skrifuð). Upphafleg hugmynd var raunar sú að þetta væri rekið í anda hefðbundinna safnaða, að einns prestur myndi sjá um allt. En viðtökurnar hafa verið það góðar og verkefnið er það spennandi að þetta er ekki hægt. Þau hafa því ákveðið að endurhugsa verkefnið.
Áherslan hefur verið og verður áfram á starf með smærri hópum þar sem fram fer uppfræðsla um kristna trú, sálgæsla og bænalíf. Núna hafa þau takmarkað sig við 5 slíka hópa (pastoral groups eru þeir kallaðir) og í hverjum þeirra eru 15 meðlimir. Hver hópur er leiddur af sjálfboðaliða og oft hafa þessir sjálfboðaliðar mikla reynslu af kirkjustarfi. En þetta þarf að víkka út og það kallar á fleiri sjálfboðaliða og meira starfsfólk.
Að sögn Richard Thomas hafa þau lært tvennt af þessum fyrstu mánuði:
Næstu skref þeirra eru þessi:
Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 2297.