Trúin og lífið
Pistlar


Undirsíður

Eftir sama höfund

Skyldir pistlar

Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.



Leita í pistlum

Ásta Rut Ingimundardóttir og Fríða Björk Skúladóttir og Bjarnheiður Böðvarsdóttir

Regntími og eltingaleikur við skordýr

29. janúar 2007

Nú er regntími hér í Malaví og því fylgir daglegt rafmagnsleysi. Fæstir innfæddir hafa rafmagn og þó þeir hafi það nota þeir það ekki til að elda þar sem það er of dýrt. Í staðinn elda þeir enn á opnum eldi. Þar sem rafmagnið fer oftast af rétt fyrir kvöldmat lendum við oft í vandræðum með að elda kvöldmatinn. Nágrannarnir okkar furða sig á því af hverju við erum svona ósjálfbjarga án rafmagns og af hverju við kveikjum ekki upp eld til að elda eitthvað.

Úr næringarmiðstöðÞeir voru lengi ad skilja það að við höfum aldrei eldað á opnum eldi, bara notast við grill. Nú eru þeir farnir að koma með mat til okkar ef þeir sjá að það er rafmagnslaust svo við fáum nú eitthvað að borða. Regntímanum fylgir líka mikil fjölgun á skordýrum. Þar sem við erum ekki vanar skordýrum í svo miklu mæli erum við farnar að fjárfesta í skordýraeitri í miklu magni. Innfæddir skilja ekki af hverju við spreyjum a allt kvikt þar sem þeim finnst aðeins ástæða til að losa sig við skordýr sem bíta. Við forðumst að opna glugga eða dyr eftir myrkur annars fyllist allt af skordýrum. Það er líka orðinn fastur liður að hafa með sér skordýraeitur ef farið er á kamarinn eftir myrkur. Nágrannarnir hafa hlegið mikið að okkur þegar við stöndum þrjár og tökum okkur til, spreyjum kamarinn og eltum uppi hvern kakkalakkann eftir öðrum.

Vid hofum haft þéttskipaða dagskrá síðustu fjóra mánuðina, bæði vinnu og ferðalög. Við höfum ferðast talsvert um landið þvert og endilangt og farið að Malavívatni sem er algjor paradís med hvítar strendur. Jólum og áramótum eyddum við síðan í Suður-Afríku. Að okkar mati er Suður-Afríka eitt best geymda leyndarmál fyrir ferdalanga á öllum aldri. Það var einnig kærkomið frí fyrir okkur frá því að búa í þriðja heims landi þar sem allt er mun vestrænna þar. Við fórum bæði til Jóhannesarborgar og Höfðaborgar, skoðuðum heimili Nelson Mandela, Robben Island þar sem hann var í fangelsi, Soweto fátækrahverfi, Góðrarvonarhöfða, Table Mountain og auðvitað strúta og afrísku mörgæsirnar.

Næsta mánuðinn munum við taka að okkur nýtt verkefni sem felur í sér að sinna HIV-sjúklingum (nokkurs konar heimahjúkrun) og greina og meðhöndla munadarlaus börn í sýslunni þar sem við búum. Við munum segja betur frá því í næsta mánuði.

Fríða Björk Skúladóttir
Ásta Rut Ingimundardóttir
Bjarnheiður Böðvarsdóttir



Ein viðbrögð við “Regntími og eltingaleikur við skordýr”

  1. Lóa Björk skrifar:

    Sælar og blessaðar !

    Mikið er áhugavert og frábært að lesa um þetta góða starf sem þið vinnið þarna úti í heimi. Sennilega hefði ég ekki rekist á pistlana ykkar nema af því að ég er sjálf að íhuga að rífa mig upp og fara til Afríku (helst ) í hjálparstarf. Ég hef starfað sem hjúkrunarfræðingur í 5 ár og hef síðustu 3 árin unnið hjá Heilsugæslunni í Heimahjúkrun. Ég veit ekkert hvernig ég á að snúa mér í þessu og langaði að athuga hvort þið hefðuð góð ráð handa mér , varðandi hvert er best að leita og hvernig ferlið gengur fyrir sig.

    Annars vona ég bara að allt gangi vel hjá ykkur og að þið haldið áfram að læða inn pistlum annað veifið.

    Kær kveðja , Lóa

Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 1712.


Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar