Trúin og lífið
Postillan


Undirsíður

Eftir sama prédikara

Skyldar prédikanir

Kirkjuárið

Prédikanir á trú.is eru birtar undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.



Leita í prédikunum

Sigurður Árni Þórðarson

Ég elska þig

Flutt 24. desember 2011 í Neskirkju

Hvað er í pakkanum þínum, já öllum pökkunum, sem bíða heima? Á mörgum heimilum er verið að rífa upp fyrsta pakkann núna, svona til að róa ungviði og kannski einstaka eldri, sem ekki ráða við sig! Hvað mun koma úr pökkunum þínum? Nýturðu hlýjunnar að baki gjöfunum? Verðar einhverjir skyldugjafir - án hjartahlýju? Færðu kannski pakka, sem kosta lítið en munu snerta þig djúpt - og verða þér mikils virði af því þeir tjá ást og alúð? Pakkar eru mismunandi og gildi þeirra líka.

Hvaða gjöf dreymir þig um? Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu? Nú skaltu kyrra huga og slaka vel á. Hugsaðu um hvað þú mátt missa. Hvað má gossa? Eru það hlutirnir þínir, eignir, vinna, vandræði eða er það fólkið þitt? Hvað er það, sem þú getur alls ekki án verið?

Vegna starfa minna á ég trúnað margra. Ég sperri eyru þegar fólk á krossgötum lífsins - og stundum við ævilok - gerir upp og talar um stóru málin. Hvað skiptir fólk máli þegar allt er skoðað? Það er lifandi fólk, maki, börn, ástvinir – ekki dótið. Og oft er stærsta sorgin að hafa ekki haft meira næði til að vera með ástvinunum.

Hjartans málin
Pakkinn þinn – hvernig verður hann? Sex ára drengir mínir eru duglegir að æfa sig í bókstöfum og að skrifa orð. Svo verða til alls konar undur. Við foreldrarnir höfum fengið í hendur síðustu mánuði snepla, kort og bréf. Þar eru skrifaðaðar áhrifaríkar tilkynningar með stórum og barnslegum stöfum: “Pappi er bestur” eða “Mamma er best í heiminum.” Svona bréf hafa mörg ykkar fengið.

Þessi bréf og erindi þeirra eru ekki hlutlægar lýsingar á stöðu eða gæðum, heldur tjáning á afstöðu barns. Þetta eru ekki lýsingar á staðreyndum, sem allir eru sammála um, heldur tjáningar á tilfinningum. En við, sem fáum svona ástarbréf, fögnum þeim.

Á snepli, sem ég geymi sem merkilegasta plagg heimsins, stendur. “Ég elska þig, pabbi.” Þessi setning varðar lífshamingju mína. Þegar maður er búinn að sjá allt sem þessi veröld býður, sjá inn í lífskima þúsunda, þá veit maður að það er þetta sem skiptir öllu máli. Ég elska þig - þetta undur að fá að elska og vera elskaður. Það er það sker úr um líf og hamingju. Miðinn, sem drengurinn minn skrifaði - Ég elska þig, pabbi – myndi ekki vera metinn til margra króna, en er mér samt óendanlega dýrmætur.

Um hvað er jólaboðskapurinn?
Og þá erum við komin að erindi jólanna. Hverju leyfum við að komast að okkur? Erum við til í að opna tilfinningapakkann líka? Jólasagan, helgisagan í Lúkasarguðspjalli, varðar það mál. Hvernig ættum við að bregðast við þessari upphöfnu sögu um hirða, engla og ungt par í vandræðum á ferð. Það er engin ástæða til að taka skynsemi og sjálf úr sambandi þótt þú njótir jólanna.

Jólaboðskapurinn er ekki fyrst og fremst um meyjarfæðingu, ekki heldur um vitringa, englaskara eða að Jesús fæddist í Betlehem eða í annarri borg. Allt þetta kemur vissulega við sögu, en þau mál eru meira rammi fremur en meginmál. Erindi jólanna varðar ekki heldur um hvort Jesús Kristur fæddist árið 1, árið 0, nú eða 4 árum eða 6 fyrir tímatal okkar, sem er vissulega kennt við Kristsburð. Helgisögur eigum við ekki að taka bókstaflega heldur alvarlega. Trúin leitar að inntaki að baki bókstaf sögunnar. Sá veruleiki er persónulegur og raunar persóna.

Jólaboðskapurinn er um, að Guð elskar og elskar ákaft. Guð tjáir þá ást með róttæku móti, ekki aðeins bréflega heldur kemur í persónu. Það er ekki að skræla jólaboðskapin um of vegna þess að efni og form helgisögu þjónar ákveðnum tilgangi – að sýna hið guðlega samhengi, hina persónulegu nálgun. Helgisögur eru flétta stefja, ímynda og minna, sem þjóna boðskap eða virkni helgisögunnar. Við megum prufa að skræla burt það, sem ekki hefur í okkar samtíð skiljanlega skírskotun til hins guðlega. Kraftaverk voru forðum skýr tákn um Guðsnánd, en eru það ekki sjálfkrafa lengur. Vitringar voru tákn um stórviðburði og þjónuðu því ákveðnu hlutverki mikilvægis. En þannig er það ekki lengur nema bara í merkilegum ævintýrum. Svo var þjóðmenning, túlkunarhefð og þjóðarhefð að baki í Biblíunni, sem var eins og stýrikerfi, sem stjórnaði hvaða atriði urðu að koma fram til að hægt væri að ráða dulkóða merkjakerfisins, hvernig átti að segja hlutina til að samhengið væri ljóst. Þetta var túlkunarhefðin, menningararfleifðin sem stýrði þá – rétt eins og við lifum og stjórnumst af íslensku samhengi og íslenskum veruleika.

Mál hjartans og lífsviskan
Í spekibókinni Litla Prinsinum (eftir Antoine de Saint-Exupéry) segir refurinn við drenginn að skilnaði þessi merkilegu orð: “Hér er leyndarmálið. Það er mjög einfalt: maður sér ekki vel nema með hjartanu. Það mikilvægasta er ósýnilegt augunum.” Við þurfum ekki lengur að leggja augu og eyru við öllu og taka allt bókstaflega. En við ættum að leggja okkur eftir inntaki fremur en umbúnaði, merkingu en ekki ásýnd, persónu fremur en sögu.

Gjafir jólanna eru í umbúðum og að baki er það sem máli skiptir. Stærsta gjöf jólanna, sem við getum öðlast og opnað, er lífsundrið - að tilveran er ekki leiksoppur myrkra afla og tilvera til endanlegs dauða, heldur þvert á móti, að nóttin er rofin gráti Guðsbarnsins. Hann er hinn eiginlegi ljóssveinn og merkingarvaki allrar veraldar. Þú mátt taka upp pakkann og munt uppgötva að persónudjúp þráir svörun. Sú er gerð okkar að við þráum eiginlega djúpnæringu.

Sannindi lífsins eru með þeim hætti að hvert barn getur skilið og með hjartanu. Stærsta lífsgjöfin er “Ég elska þig.” Guð er ástmögur, elskar ákaft og ævinlega - tjáir þér alltaf, á öllum stundum lífsins, á álagstundum, á hátíðum, með börnum, í makafangi og alls staðar: “Ég elska þig. Mig langar til að vera þinn og langar til að þú sért mín og minn.” Til þín – Frá þeim sem elskar þig.
Njóttu svo pakkanna þinna heima, horfðu í augun á fólkinu þínu og sjáðu í þeim undur lífsins. Gjöf lífsins og jólagjöfin í ár. Til hamingju og gleðilegan elskutíma.

Amen.

Íhugun – aftansöngur á aðfangadagskvöldi, 2011.

Textar aðfangadags samkvæmt B-röð

Lexía: Mík 5.1-3
En þú, Betlehem í Efrata,
ein minnsta ættborgin í Júda,
frá þér læt ég þann koma
er drottna skal í Ísrael.
Ævafornt er ætterni hans,
frá ómunatíð.
Því verður þjóðin yfirgefin
þar til sú hefur fætt er fæða skal.
Þá munu þeir sem eftir lifa ættmenna hans
snúa aftur til Ísraels lýðs.
Hann mun standa sem hirðir þeirra
í krafti Drottins,
í mætti nafns Drottins, Guðs síns,
og þeir óhultir verða.
Þá munu menn mikla hann
allt til endimarka jarðar.

Pistill: Tít 2.11-14
Því að náð Guðs hefur opinberast til sáluhjálpar öllum mönnum. Hún kennir okkur að afneita óguðleik og veraldlegum girndum og lifa hóglátlega, réttvíslega og guðrækilega í heimi þessum, í eftirvæntingu okkar sælu vonar, að hinn mikli Guð og frelsari vor Jesús Kristur opinberist í dýrð sinni. Hann gaf sjálfan sig fyrir okkur til þess að hann leysti okkur frá öllu ranglæti og hreinsaði sjálfum sér til handa eignarlýð, kostgæfinn til góðra verka.

Guðspjall: Lúk 2.1-14
En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.
Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni sem var þunguð. En meðan þau voru þar kom sá tími er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu af því að eigi var rúm fyrir þau í gistihúsi.
En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir en engillinn sagði við þá: „Verið óhræddir, því, sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.“
Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu:
Dýrð sé Guði í upphæðum
og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum.

Um höfundinn

Viðbrögð

Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og Þjóðkirkjan. Flettingar 137.


Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar