
Ef þú ert að velta fyrir þér einhverju sem snertir kristna trú, kirkjuna, Biblíuna eða kristna guðfræði þá er hægt að bera fram fyrirspurn hér. Einnig ef þú hefur spurningu um trúna og lífið almennt, um dauðann, hvað eina sem snertir kirkjuna.
Spurningunum er svarað af starfsmönnum kirkjunnar, prestum, djáknum, guðfræðingum, leikum og lærðum, sem öll hafa mikla reynslu af starfi innan kirkjunnar og með fólki.
Þú getur flett upp í eldri svörum og séð hvort hugsanlega er búið að svara þinni spurningu eða öðrum spurningum sem þér þykja fróðlegar áður.
Einnig geturðu brugðist við þeim spurningum og svörum sem er að finna á vefnum með því að skrifa ummæli við þau. Kannski hefur þú reynslu að deila með okkur sem á heima hér.
Það er ekki margt vitað með vissu um ætt Maríu meyjar. Í Nýja testamentinu eru engar upplýsingar um hvar eða hvenær María hafi verið fædd né heldur er foreldra hennar getið. Í guðspjöllunum er María ávallt kynnt sem móðir Jesú. ...