Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hvað eru guðfeðgin
  2. Alfa námskeið í Þjóðkirkjunni

Hvað heitir kapellan hjá Valsheimilinu?

Pétur Jóhann spyr:

Góðan dag.

Ég þarf nauðsynlega að vita hvað kapellan hjá Valsheimili heitir og hvernig mögulegt er
að komast í samband við forstöðumenn hennar.

Kærar þakkir.

Árni Svanur Daníelsson svarar:

Komdu sæll Pétur Jóhann og takk fyrir spurninguna.

Kapellan við Valsheimilið heitir Friðrikskapella í höfuðið á Friðrik Friðrikssyni, sem er einn af stofnendum Vals. Á vef Vals er að finna upplýsingar um sögu félagsins og þar segir meðal annars um þetta:

„Árið 1908 var stofnuð unglingadeild innan KFUM í Reykjavík og var séra Friðrik Friðriksson leiðtogi deildarinnar og naut óskoraðrar virðingar. Drengirnir sóttu ekki einungis fundi í KFUM hjá séra Friðriki, stofnað var taflfélag, hljómsveit var starfrækt og margt fleira. Á þessum tíma fæddist hugmynd hjá KFUM drengjunum að stofna knattspyrnufélag en nokkur slík félög höfðu þá verið stofnuð í Reykjavík. Það var síðan 11. maí 1911 sem haldinn var fundur á lesstofu KFUM þar sem sex piltar stofnuðu Fótboltafélag KFUM en nafni félagsins var þegar sama ár breytt í Val.“

Best er að tala við Kára Geirlaugsson varðandi kapelluna. Hann hefur netfangið kari@ga.is.

Bestu kveðjur,
Árni Svanur

21/9 2004 · Skoðað 3071 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar