Svör sem birt voru í sama mánuði
Anna spyr:
Ég hef áhuga á að fara á námskeið í tólf spora vinnu eftir áramótin 2004/5. Getið þið bent mér á hvaða kirkjur verða með þessi námskeið í byrjun árs.
(Ég bý í austurbænum í Reykjavík).
Bestu þakkir fyrir ykkar góða vef.
Halldór Reynisson svarar:
Uppfært
Síðan þetta svar birtist hefur verið opnaður nýr vefur um tólf spora starfið, sjá nánar svar við annarri fyrirspurn um tólf spora starfið hér á vefnum.
Nýr tólf spora hópur byrjar mánudaginn 10. janúar kl. 20 í Laugarneskirkju. Farið er yfir kynningarefni næstu fjóra mánudagana á opnum fundum. Engin skuldbinding er þó gerð fyrr en á fjórða fundi og eftir það hefst hin eiginlega sporavinna í litlum, lokuðum hópum.
Í vetur er tólf spora hópastarf í eftirtöldum kirkjum í Reykjavík:
Laugarneskirkja
Hallgrímskirkja
Neskirkja
Bústaðakirkja
Grensáskirkja
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Hjallakirkja í Kópavogi
Kirkja Óháða safnaðarins í Reykjavík
KFUM+KFUK
og á landsbyggðinni eru hópar starfandi við þessar kirkjur:
Landakirkja í Vestmannaeyjum
Selfosskirkja
Grundarfjarðarkirkja
Holt í Önundarfirði
Hvammstangakirkja
Akureyrarkirkja
Glerárkirkja á Akureyri
Egilsstaðakirkja
Opnir fundir eru í Laugarneskirkju á mánudögum kl. 18:00.
Opnir fundir eru í Kirkju Óháða safnaðarins á miðvikudögum kl. 18.00 og verður fyrsti opni fundurinn miðvikudaginn 19. janúar og síðan vikulega eftir það.
Opnir ellefta spors fundir eru í Fríkirkjunni í Hafnarfirði á fimmtudögum kl. 20.00.
Kirkjurnar eru smátt og smátt sjálfar farnar að sjá um kynningu á tólf spora starfi sínu, eftir því sem meiri reynsla skapast á hverjum stað, og er víða um mjög öflugt starf að ræða með ágætri þátttöku bæði karla og kvenna. Það er augljóst að þar sem kirkjan gerir tólf spora starfið að sínu verkefni og auglýsir með öðru starfi hefur það dafnað vel og verið vettvangur þar sem fólk tekst á við tilveruna í nærveru Guðs og með öðru fólki.
Nánari upplýsingar um veitir Margrét Eggertsdóttir verkefnisstjóri tólf spora starfsins. Netfang hennar er. maggegg@simnet.is en síminn 692 0532.
13/1 2005 · Skoðað 6092 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit