Svör sem birt voru í sama mánuði
Ónefnd(ur) spyr:
Eru einhverjar reglur til um það hve lík má standa lengi uppi?
Jón Helgi Þórarinsson svarar:
Aðkoma presta og kirkjunnar að andláti miðast fyrst og fremst við að gæta þess að ættingjar hins látna fái eðlilegt næði og rými til að kveðja hinn látna sem og að gæta þess að þeir sem annast líkið allt frá andláti til jarðsetningar geri það af virðingu við hinn látna sem og ættingjum hans.
Reglur um meðferð líka falla undir ráðuneyti dómsmála og heilbrigðismála og fellur fyrirspurnin undir heilbrigðismál. Að því er ég best veit eru hins vegar engar reglur til um hve lengi lík má standa uppi. Fer það án efa eftir aðstæðum á hverjum stað, s.s. hvort um kalda líkgeymslu sé að ræða eða ekki. Í álitamálum er eðlilegast að snúa sér til viðkomandi héraðslæknis sem kallar þá aðra til liðs við sig ef þurfa þykir.
23/8 2005 · Skoðað 3144 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit