Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Vottorð vegna hjónavígslu
  2. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  3. Gifting erlendis
  4. Trúlofunarhringur á hendi
  5. Hjónavígsluspurningar

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hvenær hófst æskulýðsstarf hér á landi?
  2. Hvert er gullinsniðshlutfallið í krossi?
  3. Hver er afstaða kirkjunnar til vinnu á helgum dögum?
  4. Hver er munurinn á bændakirkju og safnaðarkirkju?
  5. Skráning á hjónanámskeið

Hvað þarf langan undirbúningstíma fyrir hjónavígslu?

Margrét spyr:

Sæl verið þið.

Ég og maðurinn minnn ætlum að gifta okkur. hvað þarf að hugsa um þetta með löngum fyrirvara? Eru 2-3 vikur nógur tími? Þetta verða aðeins við tvö, börnin okkar og foreldrar.

Kveðja,
Margrét

Þorvaldur Karl Helgason svarar:

Komdu sæl og takk fyrir spurninguna.

Eruð þið ekki bæði íslenskir ríkisborgarar? Ef svo er þá þurfið þið að byrja á að verða ykkur úti um vottorð um hjúskaparstöðu sem Hagstofan (eða Þjóðskrá) gefur út. Það getið þið fengið samdægurs. Svo þurfið þið að hafa samband við prest og tryggja ykkur kirkju ef hann er ekki prestur í þeirri kirkju sem þið viljið giftast í. Presturinn fyllir nánar út með ykkur könnunarvottorð.

Bestu kveðjur,
Þorvaldur Karl Helgason

28/10 2005 · Skoðað 2831 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar