Svör sem birt voru í sama mánuði
Árni spyr:
Hvenær hófst æskulýðsstarf í kirkjunni hér á landi?
Pétur Björgvin Þorsteinsson svarar:
Sæll Árni og þakka þér fyrir spurninguna.
Barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar á sér langa hefð og sögu, enda er það byggt á traustum grunni, sem má finna í köllun kirkjunnar að boða og uppfræða í trú. Barna- og æskulýðsstarfið byggir á orðum Jesú í guðspjöllunum þar sem fram kemur mjög jákvætt viðhorf til barna. Kirkjan leitast við að vera einstaklingnum samferða allt lífið. Það er köllun kirkjunnar að eiga samleið með börnum og hefst sú vegferð í skírninni. Í gegnum aldirnar hefur kirkjan verið frumkvöðull að starfi með börnum og unglingum. Áður var það fyrst og fremst í formi bóklegrar menntunar og uppfræðslu, en nú á síðustu áratugum hefur tómstundarstarf meðal barna og unglinga einnig aukist.
Upphaf æskulýðsstarfs kirkjunnar í þeirri mynd sem við þekkjum það í dag og stofnun æskulýðsfélaganna var rökrétt framhald þess mikla uppgangs sem verið hafði í sunnudagaskólastarfi kirkjunnar um og upp úr 1930. Þá hafði stofnun KFUM og KFUK í Reykjavík og eldhugi hins þjóðkunna sr. Friðriks Friðrikssonar á fyrstu áratugum þeirrar aldar vakið umræðu og umhugsun innan kirkjunnar um mikilvægi barna- og unglingastarfs.
Fyrsta formlega æskulýðsfélagið var stofnað í Akureyrarkirkju 19. október 1947 en þá var sr. Pétur Sigurgeirsson, síðar biskup yfir Íslandi, nýkominn til starfa þar. Í framhaldi af því var fjöldi æskulýðsfélaga stofnaður á norðurlandi. Reykvíkingar létu ekki sitt eftir liggja og stofnuðu sín æskulýðsfélög, þó þörfin væri önnur þar sem KFUM og KFUK höfðu allt frá stofnun staðið fyrir öflugu félagsstarfi. Í Laugarneskirkju stóðu prestshjónin Vivian og sr. Garðar Svavarsson fyrir stofnun æskulýðsfélags 2. febrúar 1954. Tilgangur félagsins var m.a. að gefa fermingarsystkinum tækifæri til að halda hópinn, búa þeim hollar og ánægjulegar tómstundir og efla háttvísi og prúða framkomu félagsmanna.
Það var svo hinn 8. mars 1959 að fyrsti æskulýðsdagur kirkjunnar var haldinn hátíðlegur með æskulýðsguðsþjónustum í kirkjum landsins.
Með kveðju,
Pétur Björgvin
31/10 2005 · Skoðað 2056 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit