Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Hvað gerðist á hvítasunnunni?
  2. Kvæðið af stallinum Kristí
  3. Borðbænir
  4. Nöfn vitringanna þriggja
  5. Stóru brandajól

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hvenær hófst æskulýðsstarf hér á landi?
  2. Hvað þarf langan undirbúningstíma fyrir hjónavígslu?
  3. Hvert er gullinsniðshlutfallið í krossi?
  4. Hver er munurinn á bændakirkju og safnaðarkirkju?
  5. Skráning á hjónanámskeið

Hver er afstaða kirkjunnar til vinnu á helgum dögum?

spyr:

Hver er afstaða kirkjunnar til þeirrar þróunnar sem hefur orðið til þess að sumt fólk er skyldað til að vinna á helgum dögum, á ég þar aðalega við fólk sem vinnur við verslun og þjónustu.
Það er ekkert orðið heilagt þegar kemur að þessu... sem dæmi hafa bensínstöðar opið yfir alla páskahátíðina, þetta finnst mér mikið óréttlæti og til skammar.
Hvernig fórum við að áður fyrr ?
Þetta eru bara vangaveltur hjá mér en mér þætti gaman að vita hvað ykkur finnst því að það er eins og öllum standi á sama um þetta góða fólk sem er traðkað á endalaust.


kv.

Jón

Kristján Valur Ingólfsson svarar:

Komdu sæll.

Þjóðkirkjan hefur áhyggjur af þessari þróun af mörgum ástæðum og mætti skrifa um það langt mál. Hér er eingöngu gefið stutt svar, en í nokkrum liðum.

1. Sú breyting sem gerð var á helgidagalöggjöfinni fyrir nokkrum árum var gerð á þeim forsendum að það þyrfti að rýmka um opnunartíma verslana og ýmislegrar þjónustu vegna ferðamanna, einkum erlendra. Hún hefur hinsvegar orðið til þess að miklu erfiðara er að standa vörð um helgi sunnudagsins, eða aðra helgidaga. Það gildir bæði um helgidaga kirkjunnar, eins og jól og páska og helgidaga þjóðarinnar eins og 17,júni, eða sjómannadaginn. Ef engin munur er á yfirbragði helgidaga og virkra daga í samfélaginu, verður líka erfiðara að gera dagamun.

2. Kirkjan vill brýna fyrir börnum sínum að gleyma ekki helgideginum og hvíldardeginum og hvetur til þess að þau taki frá tíma til að eiga stefnumót við hið heilaga. Hún hefur áhyggjur af því að margir eiga þess ekki kost að eiga frí á sunnudegi, en hefur aukið starfsemi sína á örðum dögum vikunnar til þess að mæta þessum vanda að einhverju leyti. Ekkert kemur þó í stað sunnudagsins, sem er dagur Drottins.

3. Kirkjan hefur einnig áhyggjur af því að þessi þróun hefur leitt til þess að fjölskyldulífið verður útundan og líður undir þessu fyrirkomulagi. Það er mjög bagalegt þegar foreldrar geta ekki verið með börnum sínum á frídögum barnanna, vegna þess að þau þurfa að vinna.

4. Kirkjan hefur einnig áhyggjur af aukinni hörku á vinnumarkaðinum sem leyfir til skerðingar á atvinnuöryggi. Það er alvarleg staða þegar svo er komið að þú gætir misst vinnuna ef það koma margar jarðarfarir í fjölskyldunni með stuttu millibili.

5. Samfélagið mun ekki hverfa aftur til fyrri lífshátta. Það sem kirkjan getur gert (og þarf að gera í meira mæli) er að vekja athygli á þessum vanda og hvetja vinnuveitendur til þess að hafa meiri sveigju gagnvart starfsfólki sínu, og einkum fjölskyldufólki svo að það megi ”halda hvíldardaginn heilagan”

Bestu kveðjur,
Kristján Valur

20/10 2005 · Skoðað 2987 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar