Svör sem birt voru í sama mánuði
Heiða spyr:
Hvað eru til svona sirka margar kirkjur á Íslandi?
Árni Svanur Daníelsson svarar:
Komdu sæl Heiða.
Takk fyrir spurninguna. Á kirkjan.is er að finna Kirknaskrá sem Ásta Margrét Guðmundsdóttir tók saman árið 2004. Þar eru kirkjur á landinu flokkaðar í fernt:
Sóknarkirkjur í umsjá safnaða: 261
Sóknarkirkjur sem eru bændakirkjur eða í eigu og umsjá annarra en safnaða: 22
Aflagðar sóknarkirkjur: 49
Önnur guðshús (kapellur, bænhús): 41
Samkvæmt þessu eru kirjkur á landinu (í notkun og aflagðar) 332 talsins, bænhús og kapellur eru 41 talsins.
Ég vona að þetta svari spurningunni, annars skaltu endilega hafa samband við okkur aftur.
Bestu kveðjur,
Árni Svanur
13/12 2005 · Skoðað 2252 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit