Svör sem birt voru í sama mánuði
Valtýr Kári Finnsson spyr:
Góðann daginn.
Mig langar aðeins til að forvitnast um kirkjuna, og þá meina ég húsið sjálft, ekki trúna.
Hér á íslandi eru lang flestar eldri kirkjur eins útlítandi, kassalaga hús með turni.
Er einhver ritningarleg ástæða fyrir þessu? Hvað ákveður hvernig kirkjur eru byggðar? T.d. er blönduóskirkja fremur ólík flestum kirkjum í útliti. Og hvað með dómkirkjur, musteri eða moskvur o.s.frv? Er til eitthvað sem kallað kirkju arkitektúr? Er þetta mismunandi milli landa?
Ég vona að ykkur finnist þetta ekki of undarleg spurning.
Kristján Valur Ingólfsson svarar:
Sæll Valtýr Kári og þakka þér fyrir spurninguna.
Já, það er til sérstakur kirkjuarkitektúr og það eru til grundvallarleiðbeiningar um kirkjubyggingalist og guðfræðilegar forsendur kirkjubygginga. Mismunur er ekki milli landa, en mismunur getur verið á milli kirkjudeilda. Um moskur gilda allt önnur lögmál og þurfa aðrir að svara til um þær. Musterið í Jerúsalem var byggt í samræmi við ákveðnar reglur sem lesa má um í 1.Konungabók í köflum 5 - 9.
Í stuttu máli má segja að musterisbyggingin annarsvegar og loftsalurinn þar sem Jesús neytti síðustu kvöldmáltíðarinnar hinsvegar hafi haft mikil áhrif á kirkjubyggingarlistina og geri enn þann dag í dag. Í tímans rás hafa orðið töluverðar breytingar í kirkjubyggingarlistinni sem rekja má í annan tíma, bæði um útlit og innra skipulag, en í stuttu máli má segja að kirkjuhúsið sé bygging sem hið innra reynir að uppfylla þarfir safnaðarins fyrir stað til tilbeiðslu og safnaðarstarfs, en hið ytra til að prýða andlit byggðarinnar, hvort sem er í þéttbýli eða strjálbýli.
Ég vona að þetta svari spurningunni, en vel má skrifa lengra svar síðar.
Bestu kveðjur,
Kristján Valur
25/1 2006 · Skoðað 2465 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit