Svör sem birt voru í sama mánuði
Sólveig spyr:
þegar útfarir fara fram í kirkjunni í mínum heimabæ er flaggað í hálfa á fánastöng við kirkjuna. Kirkjugarðurinn er í smá fjarlægð og áður en líkbíllinn fer af stað í garðinn, dregur meðhjálparinn fánann í heila stöng. Er eðlilegt að gera það þá eða ætti hann heldur að draga upp fánann þegar athöfn í garðinum er lokið eða þegar kistan er komin í gröfina? Hvenær er besti tíminn?
Kristján Valur Ingólfsson svarar:
Sæl Sólveig.
Þökk fyrir spurninguna. Mér sýnist reyndar að þú vitir svarið.
Það er gömul hefð að flaggað er í hálfa stöng þar til kistan hefur verið látin síga í gröfina og búið er að molda. Einu gildir þótt garður sé langt frá. Það væri ekkert við það að athuga að meðhjálparinn lyfti ekki fánanum fyrr en hann kæmi til baka úr garðinum, ef hann hefur engann til að hjálpa sér. Það er betra að fáni sé of lengi í hálfa stöng en of stutt, þó að sjálfsögðu megi ekki draga það of lengi.
Bestu kveðjur, Kristján Valur
10/1 2006 · Skoðað 2259 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit