Svör sem birt voru í sama mánuði
Elín spyr:
Hvaða viðhorf hefur Þjóðkirkjan til ættleiðingar?
Kristín Þórunn Tómasdóttir svarar:
Ættleiðing kemur til af tvennu. Barn sem fæðist er af einhverjum ástæðum staðsett utan fjölskyldu sem getur annast það. Einstaklingur eða par sem vill ganga barninu í foreldrisstað fær stöðu sína sem slíka staðfesta í gegnum dómskerfi viðkomandi lands.
Á Íslandi eru ættleiðingar erlendis frá lang algengastar. Þannig ættleiðingar eru því útkljáðar í gegnum okkar eigið dómskerfi og dómskerfi upprunalands barnsins. Við ættleiðingar skulu hagsmunir barnsins ætíð hafðir í fyrirrúmi og málsmeðferð öll miðuð við það. Ísland er aðili að alþjóðasáttmálum sem lúta að þessu og eiga að tryggja að hagsmuna barnsins sé gætt í öllum atriðum.
Þjóðkirkjan hefur ekki stefnu varðandi ættleiðingar sem slíkar. Hins vegar setur hún sér að styðja við fjölskyldur og heldur fram mikilvægi nærfjölskyldunnar sem vettvangs þess nauðsynlega skjóls og atlætis sem hvert mannsbarn þarf á að halda. Þannig myndi kirkjan styðja grundvallarviðmið ættleiðinga, sem er að veita barni sem ekki á þess kost annars, það skjól og þá stöðu sem fylgir því að eiga foreldra og tilheyra fjölskyldu.
Á vettvangi siðfræðinnar má síðan rekja mikilvægi þess að ættleiðing sé möguleiki sem uppfyllir þarfir og væntingar manneskjunnar til að verða foreldri, um leið og hún veitir barni sem nýtur ekki foreldraskjólsins þau mikilvægu mannréttindi að njóta ástar og umhyggju kjörforeldra. Í samhengi hins stóra heims og í ljósi þess að fjölmörg börn búa ekki við atlæti og umsjón foreldra sinna má síðan velta fyrir sér ættleiðingu sem siðferðilegum valkosti þegar fólk vill taka að sér foreldrahlutverkið.
Ættleiðing sameinar hagsmuni barnsins sem ekki nýtur atlætis foreldra og hins fullorðna sem vill ganga inn í foreldrahlutverkið og veita barninu umhyggju og skjól. Þar sem hvoru tveggja uppfyllir og styður við vöxt og vellíðan manneskjunnar er ættleiðingin bæði makleg og réttvís.
4/1 2006 · Skoðað 2361 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit