Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Gifting erlendis
  2. Hvers vegna er Boðunarkirkjan ekki með í samkirkjulegri bænaviku
  3. Stundum virkar þjóðkirkjan flókin stofnun
  4. Hvað eru sakramentin mörg?
  5. Aldur Maríu við fæðingu Jesú

Hvert er hlutverk guðforeldra?

Jóhannes spyr:

Hvert er hlutverk guðfeðra? Er algengt að börn eigi guðfeður?

Guðbjörg Jóhannesdóttir svarar:

Sæll Jóhannes, og þakka þér fyrir spurninguna.

Allar manneskjur sem hafa verið skírðar eiga guðforeldra : guðfeður og/eða guðmæður. Annað orð yfir hlutverk guðforeldra er; skírnarvottur.

Hlutverk guðforeldra er að axla þá ábyrgð, með foreldrunum, að barnið sé alið upp í kristinni trú. Guðforeldri vottar að barn er skírt og getur því auk foreldranna minnt barnið á að með nokkrum dropum vatns á koll barnsin var með áþreifanlegum hætti sýnd óendanleg ást Guðs og samfylgd hvern dag lífsins.

Það er stundum sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn, því sannarlega þurfa allir foreldrar stuðning fjölskyldu, vina og samfélags til þess að sinna hlutveki sínu sem uppalendur. Guðforeldrar eru mikilvægur hlekkur í þessari keðju og geta verið foreldrunum til stuðnings í að koma barni á legg. Guðforeldrar geta sinnt hlutverki sínu með því að : vera til staðar fyrir barnið, kenna því að biðja, biðja fyrir barninu, tala við það um Guð og fara með það í sunnudagaskólann. Það er ekki lítils virði fyrir barn að eiga að fullorðna manneskju, auk foreldranna, sem hefur auga með velferð þess og á eyru til að hlusta á vonir og þrár.

Kær kveðja,
Guðbjörg Jóhannesdóttir, sóknarprestur á Sauðárkróki.

17/2 2006 · Skoðað 3012 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar