Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Prestur og kirkja fyrir hjónavígslu
  2. Hjónavígsluspurningar
  3. Gifting erlendis
  4. Hvert er hlutverk svaramanna
  5. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Gifting erlendis
  2. Hvers vegna er Boðunarkirkjan ekki með í samkirkjulegri bænaviku
  3. Stundum virkar þjóðkirkjan flókin stofnun
  4. Hvað eru sakramentin mörg?
  5. Hvert er hlutverk guðforeldra?
  6. Aldur Maríu við fæðingu Jesú

Kostnaður við hjónavígslu

Ónefnd(ur) spyr:

Mig langaði að spyrja að einu. Við erum búsett erlendis [Danmörku] og okkur langar að athuga hver kostnaðurinn við hjónavígslu sé, þ.e. hvað þarf maður að borga fyrir prest og kirkjuna?

Þórir Jökull Þorsteinsson svarar:

Komið þið sæl.

Í Danmörku er almenna reglan sú, að afnot af kirkju eru háð því að fólk hafi tengsl við viðkomandi sókn eða sé búsett þar. Þetta virðist gilda um allar kirkjulegar athafnir. Sé um hjónavígslu að ræða þarf að minnsta kosti annað hjónaefna að eiga heimilisfestu í sókninni. Í dönsku Þjóðkirkjunni innheimta prestar ekki gjald fyrir þau embættisverk sem kölluð eru aukaverk á Íslandi. Aðgangur að kirkjum er ennfremur fólki að kostnaðarlausu fái það afnot þeirra á annað borð til kirkjulegra athafna. Í kirkjum sem íslenski sendiráðspresturinn hefur messað eða haft helgistundir með löndum sínum er litið svo á að myndast hafi tengsl við sóknina og þar er vel tekið við Íslendingum. Þessar kirkjur eru: Sønder Tranders kirkja í Álaborg svo og Nørre Tranders kirkja; Í Óðinsvéum eru það Valgmenighedens kirkja og Hjallese kirkja; Í Árósum er það Møllevangskirkja; í Horsens er það Hansted kirkja; í Sønderborg er það Christianskirkja og í Kaupmannahöfn Sánkti Pálskirkja. Þá er ekki óalgengt að skírnir og giftingar fari fram í Húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn. Prestur Íslendinga í Danmörku tekur ekki gjald fyrir embættisverk en fyrir kemur að hann biður fólk um að bera ferðakostnað fyrir sig ferðist hann um lengri veg vegna þeirra.

Besta kveðja,
Þórir Jökull Þorsteinsson.

10/2 2006 · Skoðað 3191 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar