Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Er leyfilegt að hafa altarisgöngu í brúðkaupi?
  2. Altarisganga á skírdagskvöldi
  3. Altarisganga fyrir fermingu
  4. Hvað eru guðfeðgin
  5. Hvað eru sakramentin mörg?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hverju myndi það breyta ef Jesús hefði verið giftur?
  2. Mælikvarðar á rit Biblíunnar
  3. Hvað var gralinn?
  4. Var Jesús Guð eða maður?
  5. Hvað er gnóstík?
  6. Hverjir voru Musterisriddararnir?

Hvað er kvöldmáltíðarsakramenti?

Haraldur spyr:

Hvað er kvöldmáltíðarsakramenti?

Óskar Ingi Ingason svarar:

Komdu sæll.

Kvöldmáltíðarsakramenti er einnig kallað altarisganga og berging. Nafnið vísar til síðustu kvöldmáltíðar Jesú með lærisveinunum á Skírdagskvöld. Þar stofnaði hann sakramentið sem er annað tveggja sakramenta lúterskra kirkna. Hitt er skírn. Sakramenti er heilög athöfn stofnuð af Jesú, þar sem jarðneskt efni er notað og athöfninni fylgir sérstök náð eða andleg gjöf frá Guði. Í kvöldmáltíðarsakramentinu eru efnin brauð og vín. Náðin er sú að þeir sem meðtaka helguðu efnin öðlast fyrirgefningu syndanna. Eins og áður sagði stofnaði Jesú kvöldmáltíðarsakramentið á Skírdagskvöld er hann gaf páskamáltíð Gyðinga nýja merkingu. Sú merking er að Kristur dó fyrir okkur og reis upp frá dauðum fyrir okkur. Því getum við fyrir dauða og upprisu Krists eignast nýtt líf sem er líf í Kristi. Við það öðlumst við fyrirgefningu syndanna og fyrirgefum öðrum og okkur sjálfum, eftir að hafa játað syndir okkar og iðrast í syndajátningunni. Brauðið er líkami Krists og vínið blóð Krists. Þó við trúum því að efnin séu enn brauð og vín, þá er Kristur sérstaklega nálægur í sakramentinu, þannig að í kvöldmáltíðarsakramentinu mætum við honum og minnumst.

Vona að þetta sé nægjanlegt svar.

Með kveðju,
Óskar Ingi Ingason

9/5 2006 · Skoðað 2538 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar