Svör sem birt voru í sama mánuði
Sverrir Guðmundsson spyr:
Hefur þjóðkirkjan gert eitthvað til þess að draga úr kostnaði heimilanna við fermingar? Hefur verið athugað að dreifa þeim yfir árið til þess að minnka þrýsting frá auglýsendum og samanburð á milli fermingarbarnanna í skólanum?
Halldór Reynisson svarar:
Komdu sæll.
Eftir því sem ég þekki til hvetja prestar foreldra til hófsemi þegar kemur að umbúðum utan um ferminguna, gjafir og veisluhald. Á hinn bóginn velti ég því fyrir mér í ljósi harðnandi markaðssóknar fyrirtækja gagnvart fermingarbörnum hvort Þjóðkirkjan þurfi ekki að taka upp ákveðnari afstöðu gegn þessari markaðsvæðingu fermingarinnar, t.d. með því að ræða beinlínis í fermingartímum um hættur samfara hlutadýrkun.
Hvað varðar að dreifa fermingum yfir árið, þá hef ég verið þeirrar skoðunar að reyna eigi að teygja úr fermingartímabilinu, t.d. frá byrjun apríl og fram á hvítasunnu, enda er rík hefð fyrir því á Íslandi að ferma um hvítasunnu. Þótt áður fyrr hafi verið fermt að hausti virðast flestir foreldrar og börn vilja að fermingar séu að vorlagi. Á slíkt þarf að hlusta en um leið þarf að reyna að sporna við þeirri þróun sem mér sýnist hafa orðið að flest börn fermist á tiltölulega stuttum tíma.
Bestu kveðjur,
Halldór Reynisson
8/5 2006 · Skoðað 2009 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit