Svör sem birt voru í sama mánuði
Ása spyr:
Hæ.
Ég hef eina spurningu: Hvað var haft til viðmiðunar þegar ritin í Nýja testamentinu voru valin? Hverjir voru mælikvarðarnir?
Kveðja,
Ása
Irma Sjöfn Óskarsdóttir svarar:
Komdu sæl Ása og takk fyrir spurninguna.
Clarence E. Glad fjallar um þá mælikvarða sem voru notaðir í bók sinni Átökin um textann. Hann segir að mælikvarðarnir hafi aðallega verið fimm:
„Í fyrsta lagi skyldu ritin vera samin af postula eða einhverjum nánum samstarfsmanni Jesú. Í öðru lagi ættu þau að bera augljós einkenni rétttrúnaðarins og trúarreglu hans. Í þriðja lagi var rit talið áreiðanlegra þess eldra sem það var. Í fjórða lagi kom spurningin um guðlegan innblástur ritanna til umfjöllunar, og í fimmta lagi hvort ritið hafi verið notað og þá af hverjum og hversu lengi.“ (Bls. 42)
24/5 2006 · Skoðað 2769 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit