Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Hver er munurinn á Gamla og Nýja testamentinu?
  2. Foreldrar Maríu og systkini Jesú
  3. Hvaða ritningartexta má nota við hjónavígslu?
  4. Þjóðskrá og lífsins bók
  5. Hvar er elsta kirkjan á Íslandi?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Má gifta sig fyrir 18 ára aldur ?

Er talað um bölbænir í Biblíunni?

Anna Magnúsdóttir spyr:

Er einhvers staðar í Biblíunni talað um bölbænir, það að leggja böl á fólk? Ef svo er, getið þið frætt mig hvar það er að finna og jafnvel slegið inn setningum ef þær eru ekki of margar og of langar? Einhvern tíma var lesið upp úr Bibliunni fyrir mig stuttur kafli um að fólk GÆTI lagt böl á aðra, en ég finn þetta hvergi.
með kveðju
Anna Kr.Magnúsdóttir

Bryndís Malla Elídóttir svarar:

Sæl Anna. Já, í Biblíunni er talað um bölbænir og þá sérstaklega í Gamla testamentinu. Þar kemur greinilega fram að böl er andstæða blessunar og bölbænir því andstæða blessunarbæna. Í fjórðu Mósebók er skemmtilegur kafli þar sem segir frá því að Móabítum stóð ógn af Ísraelsþjóðinni sem sett höfðu upp búðir sína á Móabsheiðum, hinum megin Jórdanar gegnt Jeríkó. Konungur Móabíta, Balak Sippórsson sendi þá boð eftir samlanda sínum að nafni Bíleam með þeim orðum að hann ætti að koma og bölva þjóð þessari, því að ég veit (sagði Balak) að sá er blessaður sem þú blessar og sá bölvaður sem þú bölvar (IV. Mós. 22:6). Málið var hins vegar ekki alveg svo einfalt þar sem Bíleam leitaði leiðsagnar Drottins sem talaði skýrt til hans, eigi skalt þú bölva þessari þjóð því að hún er blessuð (IV. Mós. 22:12). Balak (sem einfaldlega merkir konungur) bað Bílem þrisvar sinnum að bölva þjóðinni og þrisvar sinnum voru reist sjö ölturu þar sem sjö uxum og sjö hrútum var fórnað. En í stað bölbæna fylgdi Bíleam orði Drottins og bað þjóðinni, Ísraelsþjóðinni, blessunar Guðs því eins og Bíleam orðaði það: Þó Balak gæfi mér hús sitt fullt af silfri og gulli, gæti ég samt ekki brugðið af boði Drottins, Guðs míns hvorki í smáu né stóru. (IV. Mós. 22:18). Í Nýja testamentinu er ekki talað um bölbænir þó oft sé talað um böl og bölvun sem Jesús Kristur leysti okkur undan. Í Jakobs bréfi er hins vegar talað gegn því að úr sama munni geti gengið fram bæði blessun og bölvun. Og tekin dæmi því til stuðnings: Gefur lindin úr sama uppsprettuauga bæði ferskt og beiskt vatn? Mun fíkjutré geta af sér gefið olífur eða vínviður fíkjur? Eigi getur heldur saltur brunnur gefið ferskt vatn. (Jk. 3:11-12). Þannig að þegar við vísum í bölbænir í Biblíunni verðum við að hugsa um samhengi þeirra og ekki síst í ljósi Krists. Hann hvetur okkur til þess að elska náungann, elska óvini okkar og biðja fyrir þeim sem ofsækja okkur (Matt. 5:44). Hann hvetur okkur til þess að biðja þeim blessunar. Enda fékk Balak hinn móabíski konungur ekki ósk sína um bölbænir uppfylltar. En í staðinn var Ísraelsþjóðin margblessuð.

Það er gaman í þessu samhengi um Móabskonung að geta þess að Rut sem talað er um í Rutarbók var frá Móabslandi. Og smá ættfræði í lokin, Rut var langamma Davíðs konungs. Svo einhvern veginn tengist Móabsland blessun Ísraels á fleiri en einn veg.

20/6 2006 · Skoðað 3050 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar