Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  2. Hvaða inntökuskilyrði eru í Þjóðkirkjuna?
  3. Barnaskírn og Biblían
  4. Hvernig er fermingin hugsuð?
  5. Hvar nálgast ég skírnarvottorð?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hvað kostar skírn?
  2. Hvar nálgast ég skírnarvottorð?

Út á hvað gengur skírnin?

Kristín spyr:

Mig vantar svo upplýsingar um skírnina, út á hvað gengur hún, hvar kemur erfðasyndin inn í skírnina. Er það nauðsynlegt að fjalla um hana að börn séu fædd í synd.

Kveðja,
Kristín

Skúli Sigurður Ólafsson svarar:

Komdu sæl.

Skírnin er annað af tveimur svo kölluðum sakramentum í lúthersku kirkjunni. Orðið sakramenti merkir „leyndardómur“ og með því viðurkenna kristnir menn að stór hluti verka Guðs er okkur mönnunum að endingu hulinn. Skírnin er heilög athöfn sem snertir á tengslum manns og Guðs.

Ástæða þess að meirihluti þeirra sem skírðir eru í kirkjunni okkar eru börn er sú að við lítum á skírnina sem gjöf Guðs til okkar. Með því er undirstrikaður sá skilningur að við þiggjum náð Guðs – hún er ekki afrakstur verka okkar. Líta má á skírnina sem ákveðið tákn fyrir það sem Guð hefur þegar gert fyrir manninn. Skírnin krefst því einskis undirbúnings eða afreka af hálfu skírnarþegans en svo er það hlutverk foreldranna, skírnarvotta, fjölskyldu og safnaðarins að ala barnið upp í þeim anda sem kristin trú kallar á.

Erfðasyndin felur það ekki í sér að barnið sé þjakað af synd. Orðið „synd“ er þýðing á gríska orðinu hamartia sem merkir upphaflega að missa marks. Erfðasyndin vísar til þess að maðurinn leitar stöðugt frá Guði og frá þeim góða tilgangi sem hann er skapaður til. Þetta er fremur ákveðin tilhneiging – eðli sem við höfum þar sem við leitum stöðugt að því að þjóna sjálfum okkur frekar en Guði og náunganum. Kristur tók á sig sektina fyrir okkur og með samfélaginu við hann öðlumst við hlutdeild í þeirri fyrirgefningu. Með skírninni erum við tekin inn í söfnuð Krists og þar með er sú hlutdeild okkar staðfest.


Meira um skírnina: http://www.kirkjan.is/?trumal/truarlif/skirn

Kær kveðja,
Skúli

13/7 2006 · Skoðað 3140 sinnum


Ummæli frá lesendum

  1. Ólafur Garðarsson skrifar:
    Ég vil bara þakka fyrir greinargóð svör.

Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.

Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar