Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  2. Hvaða inntökuskilyrði eru í Þjóðkirkjuna?
  3. Hvernig skrái ég mig í Þjóðkirkjuna?
  4. Skírnarvottar og skráning í Þjóðkirkjuna
  5. Ferming og skírn

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hverjir eru litir kirkjuársins?
  2. Skráning í sambúð og hjónavígsla
  3. Hvað er djákni?
  4. Barnaskírn og Biblían
  5. Hver er munurinn á Gamla og Nýja testamentinu?

Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan

Erla spyr:

Mig langar svo að forvitnast um Óháða söfnuðinn og Þjóðkirkjuna.

Geri mér einhvern veginn ekki alveg grein fyrir hvort þetta séu tvennir ólíkir söfnuðir? eða hvað
Ég vil að barnið mitt sé skráð í Þjóðkirkjuna eins og ég, og maðurinn minn er skráður hjá Óháða söfnuðinum. Getur prestur Óháða safnaðarins skírt barnið en það samt verið skráð í Þjóðkirkjuna, eða er þetta tvennt alveg aðskilið????

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir svarar:

Komdu sæl.

Óháði söfnuðurinn byggir á nákvæmlega sömu kenningum og Þjóðkirkjan en er sjálfstæður söfnuður. Hann sem var stofnaður af hópi sem klauf sig úr annarri fríkirkju, Fríkirkjunni í Reykjavík, eftir prestskostningar 1949. Vildi óháði söfnuðurinn fá sr. Emil Björnsson sem prest. Prestar safnaðarins eru vígðir af biskupi Íslands og milli safnaða okkar ríkir gott samstarf.

Varðandi skráningu í trúfélag þá fylgja börn trúfélagi móður nema annað sé ákveðið. Því ætti barnið að vera áfram í Þjóðkirkjunni þó að prestur Óháða safnaðarins skíri það. Þú greinir prestinum bara frá þessari ósk og þá ætti ekki að vera neinn misskilningur.

Kveðja,
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir

16/8 2006 · Skoðað 2892 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar