Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Vottorð vegna hjónavígslu
  2. Hverju myndi það breyta ef Jesús hefði verið giftur?
  3. Hvað þarf langan undirbúningstíma fyrir hjónavígslu?
  4. Hver er munurinn á borgaralegri og kirkjulegri hjónavígslu?
  5. Hvaða ritningartexta má nota við hjónavígslu?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hverjir eru litir kirkjuársins?
  2. Hvað er djákni?
  3. Barnaskírn og Biblían
  4. Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan
  5. Hver er munurinn á Gamla og Nýja testamentinu?

Skráning í sambúð og hjónavígsla

Kristín spyr:

Sæl veri þið.

Mig langar að spyrja hvort við þurfum að vera skráð í sambúð áður en við giftum okkur?
Þá meina ég hvort það eigi að standa á vottorðinu (Í SAMBÚÐ) sem við fáum varðandi hjúskapastöðu.

Takk fyrir.
Kveðja Kristín

Sigurður Grétar Sigurðsson svarar:

Sæl Kristín.
Þakka þér fyrir spurningu þína. Það þarf ekki að koma fram á vottorðinu hvort þið séuð skráð í sambúð eða ekki. Hins vegar kemur fram á svokölluðu könnunarvottorði sem fyllt er út af presti að hjón þurfi að hafa sameiginlegt lögheimili. Oftast er lögheimili fólks það sama áður en það gengur í hjónaband en það er ekki nauðsynlegt. Hins vegar þurfa hjón að hafa sama lögheimili. Vona að þetta svari spurningu þinni nægilega vel.
Kv
Sigurður Grétar Sigurðsson

23/8 2006 · Skoðað 2693 sinnum


Ummæli frá lesendum

  1. Fiffi skrifar:
    Jahá - en hvað ef bæði gegna starfi hvort í sínu landi um margra ára skeið og eru búsett í sundur löngum stundum? (Vissulega væri erfitt að eiga þátt í sambandi þar sem lítið er um 'sam' en þetta er svosum alveg hægt). Hver er ástæða þess að hjón verði að eiga saman lögheimili?

Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.

Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar