Svör sem birt voru í sama mánuði
spyr:
Mér liggur forvitni á að vita hver er höfundur bænanna sem birtast í Trúin og Lífið, þær eru frábærar og bera vott djúphygli rótfasta í Kristi.
Þakka daglegan morgun- og kvöldverð andans.
Kv. Gígja
Árni Svanur Daníelsson svarar:
Komdu sæl Gígja.
Höfundarnir koma úr ýmsum áttum. Við höfum leitað fanga í mörgum bænabókum, en aðallega bænabókunum tveimur sem Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur tekið saman. Sú nýrri af þeim kom út á síðasta ári og þar er að finna ríkulega og góða næringu fyrir daglegt trúarlíf.
Bestu kveðjur,
Árni Svanur Daníelsson
18/8 2007 · Skoðað 1629 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit