Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Hver er munurinn á Gamla og Nýja testamentinu?
  2. Upplýsingar um skírnarvotta
  3. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  4. Hvað eru guðfeðgin
  5. Þjóðskrá og lífsins bók

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Menntun presta
  2. Kveðjan til páfa
  3. Er hægt að fermast í kirkju ef maður er ekki skírður?
  4. Nafngift andvana fædds barns
  5. Skráning vegna skírnar erlendis

Aldur skírnarvotta

Sigrún Arna Friðriksdóttir spyr:

Mig langar að forvitnast um hvort að eitthvað aldurstakmark er fyrir því að vera skírnavottur.

Ég er að fara skíra dóttur mína fljótlega og langar mig að hafa systur mína sem er 15 ára sem einn af skírnavottunum. Er það í lagi eða þarf hún að vera orðin 18.

Kristján Valur Ingólfsson svarar:

Sæl Sigrún Arna og til hamingju með litlu dótturina.
Samkvæmt reglum þjóðkirkjunnar skulu skírnarvottar vera hið minnsta tveir og hið mesta fimm. Um aldurstakmark skírnarvotta eða guðfeðgin hefur gilt sú meginregla að þau skuli vera fermdir fullveðja einstaklingar í þjóðkirkjunni. Mælt er einnig með þvi að einn eða fleiri séu á líku reki og foreldrar skírnarbarnsins.
Sú regla að skírnarvottar skuli vera hið minnsta tveir en hið mesta fimm opnar hinsvegar nýja möguleika. Það kemur fyrir að eldra systkini sem þó er ekki fermt tekur þátt í skírnarathöfnininni með því að lesa texta, flytja tónlist eða jafnvel með því að halda á barninu undir skírn.
Þá hefur meginreglan verið sú að þó að tveir skírnarvottar hið minnsta skuli vera fermdir og fullveðja megi barn (systkini) sem með beinum hætti er þátttakandi í skírnarathöfninni teljast til skírnarvottanna, enda hafi það sjálft hlotið skírn.

Með öðrum orðum. Skírnarvottar eru hið minnsta tveir og hið mesta fimm. Skírnarvottar eru fermdir fullveðja einstaklingar í þjóðkirkjunni. Auka skírnarvottar mega vera yngri ef sérstakar ástæður eru til þess.

23/10 2007 · Skoðað 2518 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar