Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Menntun presta
  2. Hvernig er skipað í valnefnd?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Kveðjan til páfa
  2. Er hægt að fermast í kirkju ef maður er ekki skírður?
  3. Nafngift andvana fædds barns
  4. Aldur skírnarvotta
  5. Skráning vegna skírnar erlendis

Menntun presta

spyr:

Prestar evangelísk lútersku þjóðkirkjunar fá sitt nám í háskóla íslands,sem er gott mál en flestar ef ekki allar aðrar kirkjudeildir þjálfa & mennta sína eigin presta & predikara í sínum eigin skólum,afhverju er það svo að þjóðkirkjan er ekki með sinn eigin prestaskóla líkt & forðum.

Kristján Valur Ingólfsson svarar:

Þegar Háskóli Íslands var stofnaður árið 1911 gerðist það með þeim hætti fyrst og fremst að þrír skólar sem til þess tíma höfðu starfað í landinu um mislanga hríð sameinuðust: Prestaskólinn, Læknaskólinn og Lagaskólinn. Þeir urðu deildir í Háskólanum ásamt með öðrum deildum sem sérstaklega voru stofnaðar þá.

Prestaskólinn sem áður var, og hafði starfað lengst af þeim þrem skólum sem áður voru nefndir, varð þannig guðfræðideild Háskóla Íslands. Þar með gerðist tvennt. Menntun presta þjóðkirkjunnar færðist frá hinum eiginlega Prestaskóla yfir í Háskóla Íslands, þannig að lokapróf frá guðfræðideild Háskólans veitti útskriftarnemendum heimild til að sækja um prestsembætti í þjóðkirkjunni, en um leið opnaðist kennslan og skólinn fyrir öðrum nemendum en þeim sem tilheyrðu þjóðkirkjunni og hugðu á starf innan hennar.

Það varð hinsvegar svo að lengst af sótti enginn um nám við guðfræðideild nema sá sem ætlaði sér að verða prestur í þjóðkirkjunni.

Þegar tímar liðu fram og áherslan óx á það hlutverk guðfræðideildar að veita almenna guðfræðimenntun óháð kirkjudeildaraðild nemenda var ákveðið að lokapróf frá guðfræðideild nægði verðandi prestum þjóðkirkjunnar ekki, heldur skyldi þjóðkirkjan sjálf bjóða fram sérstaka starfsþjálfun fyrir verðandi presta. Embættisgengi í þjóðkirkjunni skyldi uppfrá því vera sett saman úr tveim þáttum: lokaprófi frá guðfræðideild og staðfestingu á starfsþjálfun á vegum þjóðkirkjunnar. Þannig hefur fyrirkomulagið verið síðan árið 1993.



Það er rétt sem kemur fram í spurningunni að þjóðkirkjan hefur ekki sinn eigin sjálfstæða prestaskóla. Hún hefur einungis sjálfstæða starfsþjálfun verðandi presta (eins og líka verðandi djákna, þó að það hafi ekki verið viðfangsefni spurningarinnar). Ástæðan er sú að þjóðkirkjan hefur til þessa ekki talið þörf á sérstökum prestaskóla vegna þess að sú alhliða guðfræðimenntun sem veitt er við guðfræðideild Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun prestnemanna er talin fullnægjandi undirbúningur fyrir preststarf.

Þjálfun prestsefna og menntun þeirra er sífellt í endurskoðun í þeim tilgangi að geta veitt prestum bestu mögulegu menntun á breytilegum tímum. Vera kann að það verði einhverntíma ekki tryggt nema með sjálfstæðum prestaskóla, en kirkjuyfirvöld hafa til þessa ekki talið að sá tími væri kominn.

31/10 2007 · Skoðað 1921 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar