Svör sem birt voru í sama mánuði
Uggi Jónsson spyr:
Hvað eru mörg sæti samtals í kirkjum landsins, þeim sem reglulega er messað í?
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir svarar:
Sæll vertu. Það er helgihald flesta sunnudaga í öllum kirkjum höfuðborgarsvæðisins og í stærri bæjum. Einnig er víðast reglulegt helgihald til sveita þó að það sé ekki hvern sunnudag. Þetta eru afar misstórar kirkjur svo að erfitt er að svara þessari spurningu með því að gefa einhvern meðal sætafjölda. Slíkar upplýsingar liggja einfaldlega ekki fyrir.
6/2 2008 · Skoðað 1864 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit