Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Hver er munurinn á Gamla og Nýja testamentinu?
  2. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  3. Þjóðskrá og lífsins bók
  4. Barnaskírn og Biblían
  5. Hvaða inntökuskilyrði eru í Þjóðkirkjuna?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hvar er kirkjan staðsett í Reykjavík?
  2. Ofsóknir á tímum Neró
  3. Líknardráp
  4. Hvað eru skírnarvottar?

Hversu lengi stendur skírnarathöfn yfir

Elva Rut Þorleifsdóttir spyr:

Góðan dag

Mér þætti forvitnilegt að vita hversu lengi dæmigerð skírnarathöfn stendur yfir, annars vegar í heimahúsi, hins vegar í kirkju.

Með fyrirfram þökk,
kv. Elva Rut

Irma Sjöfn Óskarsdóttir svarar:

Reikna má með að skírnarathöfn taki um 10 mínútur í guðsþjónustu en heldur lengur þegar kallað er til sér skírnarathafnar í heimahúsi eða kirkju en þá tekur athöfnin sjálf yfirleitt um 15-20 mínútur

Við sérstaka skírnarathöfn gæti framvindan verið eftirfarandi:
Í upphafi athafnar er lesinn eða sunginn skírnarsálmur Síðan er lesið stutt ávarp samkvæmt handbókinni um gjöf skírnarinnar, hvað hún felur í sér.
Þá er lesin texti úr Matteusarguðspjalli sem nefndur er skírnarskipunin og síðan er lesin frásagan úr Markúsarguðspjalli um það þegar lærisveinarnir færðu börn til Jesú.
Næst er farið með skírnarbæn þar sem við biðjum fyrir barninu, felum Guði uppeldi þess, heimili og fjölskyldu.
Þá er beðin bæn yfir skírnarvatninu og það helgað
Næst fara allir saman með trúarjátninguna.
Síðan er signingin á enni barnsins og brjóst til vitnisburðar um að hugur þess og hjarta eiga að helgast fyrir trúna á Jesúm Krist.

Þá er nafngjöfin..“Hvað á barnið að heita?/Hvað heitir barnið...ef því hefur verið gefið nafn áður.

Þá fer fram hin eiginlega skírn þar sem barnið er ausið vatni í nafni föður, sonar og heilags anda.
Síðan kemur fyrirbæn safnaðarins/viðstaddra með orðum Faðri vorsins og að lokum fer presturinn með hina drottinlegu blessun
Í lokin er stutt ávarp til safnaðarins/viðstaddra þar sem bent er á ábyrgð þeirra sem nú taka við hinum skírða einstaklingi og þá sérstaklega foreldra og skírnarvotta.
Þá er afhent skírnarkerti til merkis um hið nýja líf sem barnið hefur fæðst til og söfnuðurinn minntur á fyrirbænina og trúarlegt uppeldi barnsins
Þá er sunginn annar sálmur eða lesinn

Svona er hin hefðbundna skírnarathöfn samkvæmt handbókinni.

17/4 2008 · Skoðað 2424 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar