Svör sem birt voru í sama mánuði
Sigríður Poulsen spyr:
Hvað hét konan sem vildi fá höfuð Jóhannesar skírara?
Árni Svanur Daníelsson svarar:
Komdu sæl Sigríður.
Hún hét Heródías og var eiginkona Heródesar. Það var reyndar dóttir hennar sem bað um höfuðið, en það var „að undirlagi“ móðurinnar. Það er sagt frá þessu í 14. kafla Matteusarguðspjalls og 6. kafla Markúsarguðspjalls:
„En Heródes hafði látið taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródíasar, konu Filippusar, bróður síns, því Jóhannes hafði sagt við hann: „Þú mátt ekki eiga hana.“ Heródes vildi deyða hann en óttaðist fólkið þar eð menn töldu hann vera spámann.
En á afmælisdegi Heródesar sté dóttir Heródíasar dans frammi fyrir gestunum og hreif Heródes svo að hann sór þess eið að veita henni hvað sem hún bæði um.
Að undirlagi móður sinnar segir hún: „Gef mér hér á fati höfuð Jóhannesar skírara.“
Konungur varð hryggur við en vegna eiðsins og gesta sinna bauð hann að veita henni þetta. Hann sendi böðla í fangelsið og lét hálshöggva Jóhannes þar. Höfuð hans var borið inn á fati og fengið stúlkunni en hún færði móður sinni.
Lærisveinar Jóhannesar komu, tóku líkið og greftruðu, fóru síðan og sögðu Jesú.“
Með kveðju,
Árni Svanur
17/8 2008 · Skoðað 2411 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit